Innlent | mbl | 1.4.2026 | 23:00 Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Handóðir prjónarar vildu fá uppskrift að skíðapeysunni hennar Erlu Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Miðlar skilaboðum á milli hins jarðneska lífs og handanheima „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ » Fleiri tengdar fréttir Valgerður Bachmann spámiðill telur að óhefðbundnar leiðir á borð við miðilsfundi, dáleiðslu og sams konar aðferðir, geti gagnast fólki vel við úrvinnslu áfalla sem það hefur orðið fyrir, þar á meðal eftir kynferðisofbeldi. Það byggir hún meðal annars út frá eigin reynslu en Valgerður varð fyrir kynferðisofbeldi í æsku og tókst að græða hluta af sárunum með aðstoð miðla. „Ég sjálf var misnotuð sem barn og það setti stórt strik í reikning æsku minnar og alls lífsins. Þetta er það sem hjálpaði mér við að vinna úr tilfinningum og vinna úr mínu áfalli,“ lýsir Valgerður sem var viðmælandi Ásthildar Hannesdóttur í Dagmálum á dögunum. Frétt af mbl.is Miðlar skilaboðum á milli hins jarðneska lífs og handanheima Hjálpaði að fara til miðils „Og ég á ekki bara eitt áfall, ég á þau nokkur eins og hver annar. En það hjálpaði mér að fara til miðils þegar ég var yngri.“ Til að takast á við kynferðisofbeldið? „Já. Og ekki bara kynferðisofbeldið heldur líka bara að viðurkenna það og vinna úr tilfinningum,“ segir Valgerður. „Þetta var leiðin sem hjálpaði mér við að heila tilfinningar, skilja mig betur, átta mig á tilfinningum mínum, átta mig á mínum mistökum, átta mig á að ég er mannleg og mögnuð.“ Aðgengilegri en önnur sáluhjálp Hún segist bæði hafa leitað hefðbundinna og óhefðbundinna leiða. Hún fór til sálfræðings og annars konar fagaðila, sem á þessum tíma gáfu sig út fyrir að veita áfallastuðning, en segir aðgengið að slíkum aðilum hafa verið af skornum skammti. „Þar af leiðandi var þessi leið aðgengilegri,“ segir hún og vísar til miðilsfunda. Valgerður segir þó ekki um einfaldar lausnir að ræða heldur langt og viðvarandi ferli þar sem einstaklingar með áfallasögu þurfi stöðugt að vinna úr tilfinningum sínum og ná sáttum við sjálfa sig. Svipti sig lífi eftir að upp komst um ofbeldið Hluti af reynslu Valgerðar í áfallaúrvinnslu fólst í upplifun hennar á miðilsfundi þar sem hún segist hafa náð tengingu við gerandann sinn, einstaklinginn sem braut á henni í barnæsku. Hann féll fyrir eigin hendi eftir að upp komst um kynferðisofbeldið. „Manneskjan sem misnotaði mig gerði sjálfsmorð. Þannig að þá var hún ekki í líkama lengur,“ segir Valgerður og kveðst hafa náð ákveðnu uppgjöri við einstaklinginn á þeim tíma sem hún varð hans vör á miðilsfundinum. „Það gerist þarna að ég fer til miðils og þá kemur þessi einstaklingur á fundinn. En áður en ég fer á þennan fund að þá er ég búin að finna fyrir þessum einstaklingi.“ Náði sátt við sjálfa sig Þegar Valgerður er spurð út í líðan sína á þeim tímapunkti þegar þetta er að gerast; gerandi hennar kemur í gegn á miðilsfundi, segist hún hafa upplifað blendnar tilfinningar sem urðu til þess að hún náði að sættast við sjálfa sig. „Ég horfi aldrei á að þessu verkefni sé lokið. Ég er alltaf tilbúin ef það kemur eitthvað upp sem tengist þessu. En þú getur spurt mig hvort ég sé reið eða sár eða brjáluð eða eitthvað svoleiðis. Nei, ég er það ekki.“ Valgerður segir marga skjólstæðinga sína vera að takast á við afleiðingar ofbeldis. Hún bendir á að slíkar afleiðingar geti haft djúpstæð áhrif á líðan og lífsgæði fólks sem þar með leiti oft svara við því hvort hægt sé að ná aftur jafnvægi og lifað eðlilegu, hamingjusömu og innihaldsríku lífi. Segist hún hafa fullan skilning á aðferðir af þessu tagi séu umdeildar. Þó telur Valgerður mikilvægt að útiloka ekki þær leiðir sem kunna að reynast gagnlegar þeim sem burðast með sár á sálinni. Hún leggur þó áherslu á að til sé fjöldinn allur af aðferðum og meðferðum sem hægt er að styðjast við til að vinna úr áföllum og auka vellíðan en misjafnt er hvað hentar hverjum og einum. Sjáðu viðtalið í heild sinni: „Ég er millistykki“ Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218. Tengdar fréttir Dagmál Handóðir prjónarar vildu fá uppskrift að skíðapeysunni hennar Erlu Trassað framkvæmdir í aldarfjórðung 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu Miðlar skilaboðum á milli hins jarðneska lífs og handanheima „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Látum plata okkur í einhverja vitleysu Sveindís Jane: Ég er orðlaus Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Af hverju Bab al-Mandeb? Mjög erfitt að fara inn í sumarið svona Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt Svona verður veðrið um páskana Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Hundleiðinlegt að standa í þessu Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Látum plata okkur í einhverja vitleysu Sveindís Jane: Ég er orðlaus Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Af hverju Bab al-Mandeb? Mjög erfitt að fara inn í sumarið svona Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn „Innviðaskuldin er svo mikil“ Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Hundleiðinlegt að standa í þessu Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun