Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“

  • What: An article discusses the lack of quality standards for evidence-based methods in treatment homes for children in Iceland.
  • Impact: The article raises concerns about the consistency and quality of addiction treatment provided to children in Icelandic institutions.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.2.2026 | 20:45 Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Ekki er skýrt í svarinu hvernig meðferðin hafi verið gagnreynd. Samsett mynd/Colourbox/Karítas Mennta- og barnamálaráðherra fullyrðir að á meðferðarheimilum fyrir börn hér á landi sé notast við gagnreyndar aðferðir sem skilað hafi árangri í meðferð og byggist á bestu þekkingu hverju sinni. Er nálgunin sögð byggð á faglegum grunni, en meðal annars er stuðst við leiðbeiningar sem gefnar voru út árið 2016. Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra , við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins. Spurði þingmaðurinn meðal annars hvort íslenskar stofnanir, þar sem börnum væri veitt fíknimeðferð, stæðust sömu kröfur og erlendar stofnanir þar sem slík meðferð væri veitt. Einnig var spurt hvernig fíknimeðferð fyrir börn á íslenskum stofnunum hefði verið gagnreynd. Hvorugri spurningunni var svarað með skýrum hætti, en tekið var fram að svarið væri byggt á upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu. Foreldrar barna með fíknivanda, sem vistuð hafa verið á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu, hafa í viðtölum á mbl.is og í morgunblaðinu, ítrekað gagnrýnt meðferðarstarfið hér á landi og í mörgum tilfellum skort á því inni á meðferðarheimilum. Hefur það, sem og skortur á viðeigandi meðferðarúrræðum, orðið til þess að foreldrar hafa þurft að leita út fyrir landsteinana með börn sín í fíknimeðferð. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is „Á meðan missum við þessa krakka“ Eiga að hafa eftirlit en engin gæðaviðmið til Sérstaklega er tekið fram í svari ráðherra að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) fari með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt sé á grundvelli barnaverndarlaga á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu. Fyrir liggur hins vegar að engin gæðaviðmið hafa verið gefin út fyrir þjónustuna, þrátt fyrir að lögum samkvæmt eigi GEV að þróa slík viðmið. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, sagði í samtali við mbl.is fyrr í þessum mánuði að með viðmiðum væri átt við leiðbeiningar til þeirra sem lúta eftirliti stofnunarinnar um að sinna þjónustu með ákveðnum hætti. Gæðaviðmiðin eiga að hafa það að markmiði að stuðla að auknum gæðum þjónustu en eftirlitsaðilar hafa ekki getað notast við slík viðmið þar sem þau eru ekki til, að sögn Salvarar. Frétt af mbl.is Engin gæðaviðmið og skortur á eftirliti Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, spurði Ingu Sæland út í fíknimeðferðir fyrir börn. mbl.is/Karítas Enn óljóst hvernig meðferðin er gagnreynd Það kemur ekki skýrt fram í svari ráðherra, við fyrirspurn þingmannsins, hvernig fíknimeðferð fyrir börn hér á landi hafi verið gagnreynd, heldur er aðeins talið upp hvernig meðferðinni er háttað. „Á meðferðarheimilum er notast við gagnreyndar aðferðir sem skilað hafa árangri í meðferð og byggja á bestu þekkingu hverju sinni, m.a. áhugahvetjandi samtali, atferlismótun og áfallamiðaðri nálgun,“ segir í svarinu. Bent er á að börn á meðferðarheimilum glími við flókinn sálfélagslegan vanda og að vímuefnaneysla sé hluti af því samspili. „Sú meðferð sem veitt er á meðferðarheimilum hér á landi miðar ekki eingöngu að því að taka á vímuefnaneyslu barna heldur er lögð áhersla á samþætta nálgun sem miðar að því að styrkja félagslega stöðu, efla sjálfsmynd og virkni barnsins í samfélaginu,“ segir einnig í svari ráðherra. Áhersla sé lögð á að börn upplifi öryggi á meðferðarheimilinu, að meðferð barnanna fari fram í nánu samstarfi við fjölskyldu barnsins, að virkt samstarf fari fram við samfélag barnanna, t.d. skóla og atvinnulíf, sem og áhersla á tengsl við starfsfólk meðferðarheimilisins. Í svarinu er tekið fram að í drögum að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd, sem áætlað er að lagt verði fram í febrúar, sé sérstök áhersla lögð á notkun gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi. Ákvæði sem ekki hafi verið í núgildandi lögum. Þá kemur fram að ekki hafi verið gerður formlegur samanburður á íslenskum og erlendum stofnunum þar sem börnum er veitt fíkniefnameðferð. Um geti verið að ræða eðlisólíkar meðferðir sem taki mið af þeim lögum og reglum sem gildi í hverju landi fyrir sig. Frétt af mbl.is 14 ára „að éta xanax og oxy“ Frétt af mbl.is „Þá brotnaði ég niður og fór að hágráta“ Segist hafa lært meira í meðferð úti Fyrr í þessum mánuði var á mbl.is rætt við móður drengs sem hefur verið í meðferð í Suður-Afríku frá því í október og lýsti hún ótrúlegum breytingum á honum á skömmum tíma. Sjálfur segist hann hafa lært meira á þremur mánuðum í meðferð á meðferðarheimilinu Healing Wings í Suður-Afríku, heldur en hann hafi lært í þeim meðferðarúrræðum sem stóðu honum til boða hér á landi. Hann væri reyndar enn á biðlista eftir langtímameðferð á Íslandi ef móðir hans hefði ekki tekið ákvörðun um að fara með hann út í meðferð, þar sem slíkt úrræði hefur ekki verið starfrækt hér á landi í tæp tvö ár. Drengurinn var bæði í meðferð á Stuðlum og í Blönduhlíð á Vogi, en hann strauk ítrekað úr þeim úrræðum og var í viðvarandi neyslu nánast allan tímann. Hefur móðirin þar staðfest því reglulega voru tekin af honum fíkniefnapróf sem aldrei mældust hrein. Frétt af mbl.is Mikill þroskamunur: „Þetta var svo fallegt mamma“ Meðferðin úti líklegri til að skila árangri Ingibjörg Einarsdóttir, móðir drengsins, var nýkomin frá Suður-Afríku úr heimsókn á meðferðarheimilið þegar rætt var við hana á mbl.is . Að hennar mati er nálgun og uppbygging meðferðarinnar í Suður-Afríku mun líklegri til að skila árangri heldur en meðferðarúrræði Barna- og fjölskyldustofu. Í Suður-Afríku sé til að mynda unnið eftir tólf spora kerfinu og furðar Ingibjörg sig á af hverju sé ekki notast við slíka nálgun hér á landi. Tvær vinnubækur eru hafðar til hliðsjónar í meðferðarstarfinu úti en sonur Ingibjargar er aðeins byrjaður að vinna í annarri, sem byggist á 12 spora vinnu, og hefur gagnast honum vel. Annar drengur, sem hefur verið í meðferð úti frá því í ágúst á síðasta ári, er á sama máli. Móðir hans lýsti miklum framförum og jákvæðum breytingum á drengnum í viðtali á mbl.is í október. „Minn er mjög stoltur og þeir sögðu báðir að þeir hefðu grætt meira á þessari vinnubók heldur en Blönduhlíð, Stuðlum og MST til samans,“ sagði Ingibjörg, en upptalin úrræði eru öll á vegum Barna- og fjölskyldustofu. MST-meðferð er oftast fyrsta inngrip en hún fer fram inni á heimili barnsins. Frétt af mbl.is Sonurinn allt annað barn: „Brosið er orðið einlægt“ Inga og Guðmundur ósammála um úrræði Í samtali við mbl.is í október síðastliðnum sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að hann teldi meðferðarstofnunina í Suður-Afríku ekki uppfylla staðla um meðferðarúrræði fyrir börn, hvorki hér á landi né á Norðurlöndunum. Viðurkenndi hann þó að hafa ekki kynnt sér meðferðarúrræðið í þaula en sagðist hafa kallað eftir frekari upplýsingum. Þá sagðist hann aðspurður ekki telja nauðsynlegt að bjóða upp á lokað úrræði fyrir börn með þyngsta vandann. Það samræmdist hvorki íslenskum né alþjóðalögum að lögum að loka börn inni. Inga Sæland, núverandi mennta- og barnamálaráðherra og samflokkskona Guðmundar, er hins vegar á öðru máli. Hún hefur sagt að hún telji nauðsynlegt að koma á fót lokuðu úrræði fyrir börn með alvarlegan fíknivanda til að takmarka aðgengi þeirra að fíkniefnum og draga úr líkum á að þau strjúki. Frétt af mbl.is Ítrekar nauðsyn lokaðra meðferðarúrræða fyrir börn Frétt af mbl.is „Þetta myndum við aldrei líða hér“ Frétt af mbl.is „Er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann“ Karólína Lea verðlaunuð Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Missti af gullinu og fór út í skóg 35 ára í fantaformi Fundu sprengju á keppnissvæðinu Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Höfum verið of kurteis Vindhraði setur skipum skorður Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Karólína Lea verðlaunuð Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Missti af gullinu og fór út í skóg 35 ára í fantaformi Fundu sprengju á keppnissvæðinu Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Taka afdráttarlausa afstöðu gegn bókun 35 Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmal

Share this article