Innlent | mbl | 22.4.2026 | 15:47 Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Í skýrslunni kemur m.a. fram að þær kröfur sem eru gerðar til meðferðaheimila séu óljósar eins og er. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Ekki hefur farið fram markvisst mat á árangri meðferða á meðferðarheimilum fyrir börn og unglinga hér á landi. Nauðsynlegt er að Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) komi upp slíku mati til að stuðla að umbótum í meðferðarstarfi og auka gæði þjónustunnar. Slíkt árangursmat gæti nýst til að meta hvort aðferðir sem eru notaðar í meðferðarstarfinu henti skjólstæðingahópum, skili árangri í meðferð og hvort ástæða sé til að bæta þjónustuna. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um meðferðarheimili sem eru starfrækt hér á landi. Kröfur byggðar á gömlum lögum og reglugerðum Í skýrslunni kemur einnig fram að þær kröfur sem eru gerðar til meðferðarheimila séu óljósar eins og er. Takmarkaðar kröfur koma fram í barnaverndarlögum og reglugerðir sem ná til meðferðarheimila eru annaðhvort byggðar á lögum sem eru fallin úr gildi eða hafa ekki verið gerðar frá gildistöku núverandi laga. Þá eru kvörtunar- og kæruleiðir vegna beitingar þvingunar óljósar. Tekið er fram að mikilvægt sé að reglugerðir sem eiga við þjónustu meðferðarheimila verði gefnar út samhliða gildistöku nýrra laga um barnavernd sem taka gildi 1. janúar á næsta ári. Biðlað er til BOFS að bæta innra eftirlit stofnunarinnar enn frekar, m.a. með því að tryggja að verklag sé til staðar í samræmi við kröfur sem gerðar eru til þjónustunnar og stuðla að því að starfsfólk framfylgi verklagi og starfi á sambærilegan hátt. Komast yfir fíkniefni Í skýrslunni er tekið fram að börn á meðferðarheimilum hafi sum komist yfir hluti sem ekki er heimilt hafa þar inni, eins og fíkniefni og kveikjara, en mbl.is hefur fjallað ítarlega um hvernig börn hafa smyglað fíkniefnum inn á meðferðarheimili. Í skýrslunni segir að erfitt sé að koma að öllu leyti í veg fyrir að fíkniefni berist inn á meðferðarheimili en nauðsynlegt sé að BOFS geri allt sem er á valdi stofnunarinnar til að koma í veg fyrir slíkt. Frétt af mbl.is Svona smygla börnin inn fíkniefnum Frétt af mbl.is Ráðherra um fíkniefnin: „Þetta var gamalt vandamál“ Framboðið verulega skert Athugun GEV hófst í maí fyrir tveimur árum. Þá voru eingöngu tvö meðferðarheimili í rekstri, Stuðlar og Bjargey. Vorið 2024 var Lækjarbakka lokað vegna myglu en meðferðarheimilið opnaði aftur 6. mars síðastliðinn í nýju húsnæði. Lækjarbakka var því lokað þann tíma sem athugun GEV stóð yfir. Tekið er fram að framboð á þjónustu meðferðarheimila hafi verið verulega skert frá lokun Lækjarbakka og versnaði það eftir brunann á Stuðlum haustið 2024. Þá féll hefðbundin framhaldsmeðferð fyrir drengi niður í næstum tvö ár. Drengjum í brýnustu þörf var veitt framhaldsmeðferð á meðferðardeild Stuðla, en eins og fjallað hefur verið um á mbl.is voru þar einnig drengir í gæsluvarðhaldi og afplánun. „Hafði þetta alvarleg neikvæð áhrif á gæði þjónustu sem ætlað er að veita á meðferðardeild Stuðla og í framhaldsmeðferð fyrir drengi,“ segir í skýrslunni. Þar er einnig ítrekað að þörf sé á fjölbreyttari úrræðum og samstarfi milli kerfa barnaverndarþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Miðað við núverandi lög sé gert ráð fyrir að meðferðarheimili séu félagsleg úrræði og að þar sé ekki veitt heilbrigðisþjónusta. „Við þróun úrræða þarf að gæta að því að draga úr hættunni á smitáhrifum milli barna með ólíkan vanda, að viðeigandi úrræði standi börnum til boða sem eru með alvarlegan fíknivanda og eru í þörf fyrir heilbrigðisþjónustu og að taka betur tillit til þarfa barna með geðraskanir og/eða einhverfu.“ Frétt af mbl.is Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Leið vel þrátt fyrir óánægju Samkvæmt niðurstöðum sögðu flest börn að þeim liði vel á meðferðarheimilinu, einnig þau sem voru óánægð með að vera á slíku heimili. Börnin kvörtuðu helst yfir reglum um háttatíma, níkótín- og símanotkun, að fá ekki að vera í samskiptum við vini sína og að fá ekki heimfaraleyfi. Einhver barnanna sögðust vilja meiri stuðning vegna vímuefnavanda. Hér má lesa skýrsluna í heild sinni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Besta vinkona mín sagði já“ Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Guardiola svarar Rooney: Heimskulegt Ferðamaðurinn er enn ófundinn Karítas úr bankanum í verkalýðsmálin Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Þórdís þakkaði fyrir sig Þegar byrjað að treysta varnirnar „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sjö sækja um embætti sýslumanns Náttúruvá í Norðlingaholti Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » „Besta vinkona mín sagði já“ Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Guardiola svarar Rooney: Heimskulegt Ferðamaðurinn er enn ófundinn Karítas úr bankanum í verkalýðsmálin Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar byrjað að treysta varnirnar Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Veigamikið framsal ríkisvalds Borgin fór á mis við nokkra milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sjö sækja um embætti sýslumanns Náttúruvá í Norðlingaholti Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set