Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég er harmi slegin“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.3.2026 | 17:30 „Ég er harmi slegin“ Inga segir foreldra geta treyst því að börn þeirra séu örugg á meðferðarheimilum ríkisins. mbl.is/Eyþór Árnason Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt » Fleiri tengdar fréttir Mennta- og barnamálaráðherra segir það grafalvarlegt og algjörlega óafsakanlegt að börn hafi verið vistuð árum saman í húsnæði á vegum ríkisins þar sem alvarlegir annmarkar voru á brunavörnum. Úrbætur hafi þó verið gerðar sem eigi að tryggja öryggi. Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir, eigandi húsnæðis meðferðarheimilisins Stuðla, gerði ekki úrbætur á brunavörnum á meðferðarheimilinu Stuðlum þrátt fyrir ítrekaðar kröfur af hálfu slökkviliðsins og byggingarfulltrúa. Aldrei fékkst öryggis- og lokaúttektarvottorð fyrir viðbyggingu meðferðarheimilisins vegna annmarka á brunavörnum, að kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) vegna brunans á Stuðlum í október 2024. Það lá því fyrir með skýrum hætti að brunavarnir voru ekki í lagi. Frétt af mbl.is Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Manni er orða vant Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segist harmi slegin eftir lestur skýrslunnar. „Það er eiginlega þannig að manni er orða vant. Ég er harmi slegin og það sést að þarna eru ýmsar og margar brotalamir, fleiri en maður hefði getað ímyndað sér, og er algjörlega óafsakanlegt,“ segir Inga í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Stór hópur fólks í góðri trú 17 ára drengur lést í brunanum þegar eldur kom upp á neyðarvistun, en samkvæmt rannsókn HMS hefði mátt koma í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið í samræmi við brunahönnun hússins. „Það er mjög alvarlegt, sérstaklega hjá þeim sem vissu það, en það var nú þannig að það voru ekki allir sem það vissu. Og bara alls ekki þeir sem að sáu um öryggismál inni á Stuðlum á þessum tíma. Til dæmis starfsfólk og annað slíkt. Þarna er stór hópur fólks í góðri trú um að þarna séu hlutirnir eins og þeir eigi að vera,“ segir Inga spurð hvort það sé ekki alvarlegt að börn hafi verið vistuð á Stuðlum, þrátt fyrir vitneskju um að brunavarnir hafi ekki verið í lagi. Það sé einnig grafalvarlegt að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um úrbætur. Það hafi hins vegar verið tekið á því strax í kjölfar brunans. „Það er tekið á því þannig að strax eftir þennan hörmulega atburð að þá einfaldlega er ráðist í þær aðgerðir sem að voru ekki í lagi.“ Frétt af mbl.is „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Frétt af mbl.is Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? „Þ au eiga og mega treysta“ Spurð hvernig foreldrar eigi að geta treyst því að börn þeirra séu örugg á meðferðarheimilum ríkisins, eftir þessa svörtu skýrslu HMS og annað sem hefur gengið á og greint hefur verið frá, líkt og flæði fíkniefna inn á heimilin og ítrekuð strok, segir hún að ráðist hafi verið í úrbætur til að tryggja öryggi. Foreldrar megi því og eigi að treysta. „Þau eiga ekki í mörg hús að venda og við verðum náttúrulega að treysta því að það sé eins öruggt búið að börnunum okkar og kostur er. Nú hafa hlutirnir verið lagfærðir. Nú er ég líka að ráðast í það að fá yfirlit yfir allar aðrar meðferðarstofnanir sem til eru í landinu í dag og hvernig öryggi þar er háttað. Og það verður ekki til sparað til þess að svo megi verða,“ segir Inga. „Þannig að ég á bara þau skilaboð til allra þeirra sem að eiga um sárt að binda og þurfa að koma börnunum sínum í skjól vegna erfiðleika, þau eiga og mega treysta. Börnin þeirra verða örugg og allt fyrir þau gert sem hægt er.“ Frétt af mbl.is „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Segja úrbætur hafa verið gerðar eftir brunann Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Í þriggja ára bann fyrir að tæma sjóði í eigin þágu Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út Með miklar tengingar við FH og semur við félagið „Ég er harmi slegin“ Fimm leikmenn Arsenal draga sig úr leik Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gerðu drónaárás skammt frá Finnlandi Áskoranir bænda hluti af alþjóðlegu samhengi Óheppileg ummæli lögreglu og ámælisverð hátttsemi „Erum hægt og bítandi að ná utan um þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir Nýjast á mbl.is » Í þriggja ára bann fyrir að tæma sjóði í eigin þágu Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út Með miklar tengingar við FH og semur við félagið „Ég er harmi slegin“ Fimm leikmenn Arsenal draga sig úr leik Umræðan Veistu svarið? Umboð og ábyrgð í þjóðaratkvæðagreiðslu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kannast ekki við yfirlýsingar Trumps Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Gerðu drónaárás skammt frá Finnlandi Áskoranir bænda hluti af alþjóðlegu samhengi Mest lesið Í gær Í vikunni Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ Grunur um enn eitt kynferðisbrot í leikskóla Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Þrjú lúxushús á 33 milljónir Mennirnir báðir íslenskir Göngunum lokað vegna bílveltu Vara við blindbyl Bláskógabyggð kaupir Laugarásjörðina Gul viðvörun fylgir næstu lægð Lúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri Fox News fjallar um forræðisdeilu á Íslandi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Vara við blindbyl Leiguverð þarf að hækka töluvert Mennirnir báðir íslenskir

Share this article