Innlent | mbl | 18.2.2026 | 18:30 Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Inga Sæland gefur lítið fyrir þær hugmyndir að börn eigi sér sjálf ef velferð þeirra er í húfi. mbll.is/Karítas Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir hafa gengið „ævintýralega hægt“ að fjármagna framkvæmdir við meðferðarheimili fyrir börn og endurbætur á Stuðlum. Rætt hefur verið innan ríkisstjórnarinnar um að semja við meðferðarstofnanir erlendis til að brúa bilið þangað til viðunandi meðferð er í boði hér á landi. Hún segir að ríkinu beri skylda til að koma til móts við foreldra sem vilja lokuð langtímaúrræði fyrir börn sín, og sér í hillingum úrræði hér á landi þar sem eru húsdýr, tónlist og gleði. Samkvæmt svari mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, um fjölda barna á biðlista eftir fíknimeðferð, bíður nú aðeins eitt barn eftir slíkri meðferð hjá Barna- og fjölskyldustofu. Ekki liggur þó fyrir hvort það gefur rétta mynd af stöðunni. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Vill geta lyft hamrinum og klárað málin Í töflu sem fylgir svarinu sést að ekkert barn beið eftir því að komast í meðferð á Stuðlum eða Lækjarbakka í febrúar og september árið 2025. Það er ekki skrýtið, enda var Lækjarbakka lokað vegna myglu í apríl árið 2024 og ekkert langtímameðferðarúrræði fyrir drengi hefur verið starfandi síðan þá. Þá hefur meðferðardeild Stuðla nánast eingöngu verið nýtt fyrir börn í afplánun og í gæsluvarðhaldi, frá því bruninn varð þar í október 2024. „Það hefur verið gripið til ýmissa úrræða til þess að koma í veg fyrir biðlista og þar á meðal að semja við Vog, þar sem að var verið að taka á móti börnunum í afeitrun og annað slíkt, svo við lentum í þessu áfalli með Stuðla,“ segir Inga og vísar til brunans. „Þar hefur í rauninni bara gengið ævintýralega hægt að klára að fjármagna verkefnið, það var byrjað að fjármagna fyrir langa löngu síðan. Það var gert strax, við litum á þetta sem neyðarástand,“ segir hún jafnframt. Kerfið geti verið mjög þungt í vöfum. „Samanber öll þessi formlegheit sem þarf að fylgja, útboðum og alls konar, áður en að hægt er að fara að ráðast í raunverulegar verkframkvæmdir. Það hugnast mér mjög illa að geta ekki bara hafist handa og lyft hamrinum á loft og klárað málin. En gleði mín núna lýtur fyrst og síðast að opnun Lækjarbakka í Gunnarsholti,“ segir Inga og vísar þar til langtímameðferðarheimilis fyrir drengi, sem til stendur að opna aftur á næstu dögum, en líkt og áður sagði var því lokað í apríl fyrir tæpum tveimur árum. Frétt af mbl.is Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Frétt af mbl.is „Ávinningurinn er svo mikill í mannslífum talið“ Væru enn að bíða á Íslandi Inga segist ekki vita betur en að fyrsti skjólstæðingurinn verði innritaður á meðferðarheimilið um eða upp úr mánaðamótum. Opnunin hefur tafist töluvert en síðustu mánuði hefur ítrekað verið sagt að opnun sé á næsta leiti. Inga segist því ekki ætla að halda flugeldasýningu fyrr en allt sé klappað og klárt. Vegna biðtímans sáu mæður nokkurra drengja, með alvarlegan fíknivanda, ekki annan kost í stöðunni en að leita út fyrir landsteinana með syni sína í fíknimeðferð. Eins og stendur eru að minnsta kosti þrír íslenskir drengir í meðferð í Suður-Afríku, sem hefur gengið mjög vel að sögn mæðra þeirra, og töluverður árangur náðst. Þeir væru enn að bíða eftir meðferð hér á landi. Frétt af mbl.is Mikill þroskamunur: „Þetta var svo fallegt mamma“ Frétt af mbl.is Sonurinn allt annað barn: „Brosið er orðið einlægt“ Rætt að semja við erlendar stofnanir Inga segir það hafa verið rætt innan ríkisstjórnarinnar að semja við erlendar meðferðarstofnanir svo hægt sé að senda börn í meðferðir til útlanda. „Já, það hefur verið rætt hjá okkur, að við myndum reyna að semja jafnvel við einhverja sem eru mun nær okkur, sem gætu veitt þessi úrræði og aðstoðað börnin okkar hvað það varðar, þar til að við erum sjálf komin með viðunandi úrræði fyrir þau hér heima.“ Allt verði gert til að brúa bilið. „Ef það skapast þetta bil þá verðum við að axla ábyrgð á því og við höfum vilja og getu til þess.“ Segir hún heilbrigðisráðherra hafa verið með það til skoðunar hjá sér og verið í samskiptum við erlendar meðferðarstofnanir. „Þar munu Sjúkratryggingar koma inn jafnvel. Það hafa alltaf verið ákveðnir vankantar á því að ungmenni undir 18 ára aldri hafa ekki verið talin heyra undir Sjúkratryggingar, þeirra úrræði og þeirra veikindi, fíknivandi þeirra. Við sættum okkur ekki við það.“ Frétt af mbl.is Telur meðferðarmál barna eiga heima hjá sér Frétt af mbl.is Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Barnið á ekki að ráða sér sjálft Spurð hvenær hún sjái fyrir sér að staðan í meðferðarmálum barna verði viðunandi, segir Inga að um leið og Lækjarbakki verði opnaður á ný verði laus rými fyrir börn í meðferð. Hún vill hins vegar líka sjá alvöru lokuð meðferðarúrræði, líkt og í Suður-Afríku. „Það sem ég vil sjá er langtímameðferð þar sem barnið, einstaklingurinn eða ungmennið, sem er að glíma við þennan vanda er hreinlega tekið úr aðstæðum eins og er gert þegar það er verið að fara með barnið til Suður-Afríku eða annað slíkt. Barnið er raunverulega tekið úr aðstæðum. Einstaklingurinn, hann býr ekki í þeim aðstæðum sem koma honum þangað sem hann er, í þeim erfiðleikum sem hann er að bugast undan. Ég ég hef talað fyrir lokuðum meðferðarúrræðum fyrir þessa einstaklinga ef að það er ósk foreldra og forráðamanna. Ég tel að við eigum að gera allt sem barninu er fyrir bestu, samkvæmt barnaverndarlöggjöfinni okkar,“ segir Inga og heldur áfram: „Ég gef lítið fyrir það að segja að barnið eigi að ráða því sjálft ef velferð þess byggir á að aðstoða það með að taka það úr aðstæðum og hjálpa því út í lífið á ný. Þannig að ég vildi sjá langtíma lokað meðferðarúrræði þar sem allt er gert fyrir ungmenni svo þeim líði sem best. Ég vil sjá vin í þeirra eyðimörk, þeirra eyðimerkurgöngu, þar sem að bara ekkert yrði til sparað. Þar sem að þau fá að hafa húsdýr og tónlist og gleði og gaman. Ég sé það bara fyrir mér í hillingum og ég veit að slíkir staðir eru til annars staðar og því ekki hjá okkur.“ Óski foreldrar eftir slíku lokuðu úrræði fyrir börn sín, beri ríkinu skylda til að koma til móts við það. Inga segir ekki um mörg börn að ræða sem séu komin á þann stað að þurfa slík úrræði, en að hvert barn skipti máli. „Við þurfum að taka utan um hvert einasta barn og sinna þeim eftir þeirra þörfum. Það er í rauninni mitt markmið.“ Vilja 70 milljónir punda fyrir miðvörðinn Myndir: Snjó kyngir niður í Vestmannaeyjum Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Lést af völdum kókaíneitrunar Myndir: Danakonungur mættur til Grænlands Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ „Við finnum að símtölin eru þung“ Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Vilja 70 milljónir punda fyrir miðvörðinn Myndir: Snjó kyngir niður í Vestmannaeyjum Fjármögnun gengið „ævintýralega hægt“ Lést af völdum kókaíneitrunar Myndir: Danakonungur mættur til Grænlands Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Krefst gagna vegna breyttra skráninga dánarorsaka Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Íslendingarnir snúa heim í dag Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum