Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.2.2026 | 14:15 Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Anton Brink Þær aðferðir sem notast er við á meðferðarheimilum fyrir börn hér á landi eru ekki gagnreyndar eins og ætlast er til, segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Taka þurfi allt kerfið til endurskoðunar, meðal annars starfsemi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála og Barna- og fjölskyldustofu. Þetta er í mótsögn við svar Ingu sjálfrar við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins, fyrr í þessum mánuði. Þar fullyrti hún að á meðferðarheimilum á vegum Barna- og fjölskyldustofu væri notast við gagnreyndar aðferðir sem skilað hefðu árangri og byggðu á bestu þekkingu hverju sinni. Meðal annars væri notast við áhugahvetjandi samtöl, atferlismótun og áfallamiðaða nálgun. Svarið var byggt á upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu. Spurningu Nönnu varðandi það hvernig meðferðin væri gagnreynd, var hins vegar ekki svarað. Það kvað svo við annan tón hjá Ingu eftir ríkisstjórnarfund í gær. „Nei, bara alls ekki,“ sagði hún, spurð hvort tryggt væri að notast væri við gagnreyndar aðferðir á meðferðarheimilum. „Við erum að vinna saman að því við félags- og húsnæðismálaráðherra, af því Gæða- og eftirlitsstofnun heyrir undir það ráðuneyti, en síðan er ég með börnin. Þannig það er mikil samlegð þarna.“ Frétt af mbl.is Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Engin gæðaviðmið til Sérstaklega var tekið fram í svari ráðherra við fyrirspurn Nönnu að Gæða- og eftirlitsstofnun (GEV) færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt væri á grundvelli barnaverndarlaga á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu. Fyrir liggur hins vegar að engin gæðaviðmið hafa verið gefin út fyrir þjónustuna, þrátt fyrir að lögum samkvæmt eigi GEV að þróa slík viðmið, líkt og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, benti á í viðtali á mbl.is fyrr í þessum mánuði. Inga tók fram að hún hefði aðeins verið ráðherra málaflokksins í einn mánuð, en hún tók við af Guðmundi Inga Kristinssyni, sem lét af embætti eftir að hafa farið í veikindaleyfi í lok síðasta árs. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is Engin gæðaviðmið og skortur á eftirliti Vill sjá athafnir og gjörðir „Við erum að vinna saman að þessu,“ sagði Inga og vísaði til Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Þetta verður algjörlega tekið til gagngerrar endurskoðunar, í rauninni allt kerfið, hvort heldur sem lýtur að Gæða- og eftirlitsstofnun, Barna- og fjölskyldustofu, fósturbörnum og allt það sem við erum að fá upp á borðið núna. Svo ég tali nú ekki um úrræðin sem við erum að fara að byggja upp fyrir börnin okkar, þar sem við viljum sjá til þess að við þurfum ekki að senda eitt einasta barn eitt eða neitt. Við eigum að vera fullfær um að veita þeim alla þjónustu hér heima.“ Spurð hvort sú endurskoðun kalli ekki á tímafrekar rannsóknir, sagðist hún vona ekki og benti á að fyrir liggi gögn. Það sé einfaldlega spurning um hvernig unnið sé úr þeim. „Það þurfa að vera meiri samlegðaráhrif. Við þurfum öll að vera í sama bátnum sem málaflokkurinn varðar, bæði ég sem barnamálaráðherra, með Barna- og fjölskyldustofu og meðferðarúrræðin, og svo aftur Gæða- og eftirlitsstofnun undir Ragnari Þór með félagsmálin. Þannig þetta er allt á fleygiferð í báðum ráðuneytum. Ég bind miklar vonir við að þessi gagnreynd sem verið er að tala um hér, hún liggi fyrir fyrr en síðar,“ sagði Inga. „Við erum ekki að draga lappirnar í einu eða neinu. Heldur vil ég sjá athafnir og gjörðir.“ Frétt af mbl.is „Á meðan missum við þessa krakka“ Halldór of slæm fyrirmynd fyrir Skíðasambandið Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Danakonungur sýnir Grænlendingum stuðning Eva Ruza rifjaði upp gamla takta í Kringlunni Svikari og ekki velkominn aftur Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ „Við finnum að símtölin eru þung“ Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Hringvegurinn ófær frá Vík að Kirkjubæjarklaustri Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Halldór of slæm fyrirmynd fyrir Skíðasambandið Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Danakonungur sýnir Grænlendingum stuðning Eva Ruza rifjaði upp gamla takta í Kringlunni Svikari og ekki velkominn aftur Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Innilokuð raforka í Blönduvirkjun „Það verður bara að koma í ljós“ Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Hringvegurinn ófær frá Vík að Kirkjubæjarklaustri Ók yfir fætur konu sem féll úr hópbifreið Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi

Share this article