Innlent | mbl | 8.5.2026 | 20:45 „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Inga Sæland menntamálaráðherra. mbl.is/Karítas Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir » Fleiri tengdar fréttir „Það er bara alveg ólýsanleg tilfinning og ég er bara virkilega auðmjúk og þakklát fyrir að fá að vera sá ráðherra sem fær að njóta þess heiðurs að opna formlega þennan yndislega meðferðarstað fyrir drengina okkar.“ Þetta segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um formlega opnun á endurbættu meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu í Lækjarbakka í Gunnarsholti. Heimilið var opnað á ný í Gunnarsholti í mars eftir að hafa verið lokað í tvö ár vegna myglu. Ekkert langtímameðferðarúrræði fyrir drengi var því starfrækt í tæp tvö ár, eða um 700 daga, þrátt fyrir brýna þörf á slíku úrræði. „Það er liðin tíð“ Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað ítarlega um vímuefnavanda ungra barna og skort á meðferðarúrræðum. Inga segir að nú sé ekkert barn á biðlista eftir slíku úrræði og málaflokkurinn að staðan í málaflokknum hafi ekki verið betri í árabil. „Staðan er eins góð og nokkurn tímann. Það er ekki eitt einasta barn á biðlista á Íslandi í dag eftir úrræðum, ekki eitt. Það er mjög jákvætt,“ segir Inga. „Fyrir hálfu öðru ári var jafnvel verið að setja börnin okkar í fangaklefa á Flatahrauni. Það er liðin tíð og það verður vonandi aldrei aftur. Það eru laus pláss. Það hefur ekki verið svona góð staða í málaflokknum um árabil,“ bætir hún við. Gunnarsholt er ætlað drengjum sem þurfa framhaldsmeðferð vegna hegðunar- og vímuefnavanda. Sex drengir geta verið vistaðir þar á sama tíma. Frétt af mbl.is „Mann langar að drepa sig þarna, gjörsamlega“ Frétt af mbl.is Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Þurfti að fresta formlegri opnun Heimilið tók á móti fyrstu drengjunum á heimilið í mars en formleg opnun var í dag. Athygli vakti þegar Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, þóttist opna meðferðarheimilið Blönduhlíð fjórum dögum fyrir alþingiskosningarnar 2024 en heimilið var ekki opnað fyrr en í september á síðasta ári þar sem húsnæðið stóðst ekki öryggiskröfur. Það kom í ljós eftir að Ásmundur þóttist opna heimilið. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Aðspurð segir Inga að þetta sé ekki vinnulag sem hún tileinki sér. Hún segir að til hafi staðið að opna Gunnarsholt fyrr en því hafi þurft að fresta. „Þetta var dásamlegur dagur og mikið af góðu fólki,“ segir ráðherrann. Frétt af mbl.is Óvíst hvort heimili sem ráðherra opnaði verði opnað Frétt af mbl.is Þóttist opna meðferðarheimili sem enn er lokað Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 33:52 „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Besta deildin: Vendingar hjá FH og KR: Verið að niðurlægja ÍA Lærisveinar Sigurðar á toppinn í Færeyjum Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Vilja fá hagsmunagæslu fyrir Laugalandsmálið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Haukar - Njarðvík, staðan er 33:52 „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Besta deildin: Vendingar hjá FH og KR: Verið að niðurlægja ÍA Lærisveinar Sigurðar á toppinn í Færeyjum Greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lars Løkke kyndir undir kóngi Stúdentum greitt högg á ögurstundu Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Ræningjarnir á bak og burt Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka