Innlent | mbl | 8.5.2026 | 16:27 Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Inga Sæland við opnun meðferðaheimilsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss » Fleiri tengdar fréttir Engin bið er nú eftir plássi fyrir börn og ungmenni í vímuefnavanda á meðferðarheimilum á vegum stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu í tilefni þess að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, opnaði í dag á formlegan hátt endurbætt meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu, Lækjarbakka í Gunnarsholti. Þar segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í uppbyggingu úrræða fyrir börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu. Heimilið var opnað á ný í Gunnarsholti þann 6. mars síðastliðinn eftir að hafa verið lokað í tvö ár vegna myglu. Ekkert langtímameðferðarúrræði fyrir drengi var því starfrækt í tæp tvö ár, eða um 700 daga, þrátt fyrir brýna þörf á slíku úrræði. Frétt af mbl.is Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Frétt af mbl.is Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Öryggi og hlýlegt umhverfi Heimilið er ætlað drengjum sem þurfa framhaldsmeðferð vegna hegðunar- og vímuefnavanda. Þar er rými fyrir sex ungmenni og hefur húsnæðið verið endurnýjað og lagað að starfseminni með áherslu á öryggi, hlýlegt umhverfi og heimilislegt yfirbragð. Starfsfólk Lækjarbakka hefur fengið þjálfun í aðferðafræðinni sem er beitt á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu, þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða nálgun, faglegt meðferðarstarf og gagnreyndar leiðir í þjónustu við ungmenni, segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Drengir í vistun á meðferðarheimilinu hafa aðgang að fjölbreyttri afþreyingu. Ljósmynd/Stjórnarráðið Styrkur til kaupa á hljóðfærum Dögg Þrastardóttir forstöðumaður Lækjarbakka stýrði dagskránni í dag og bauð gesti velkomna. Inga Sæland flutti ávarp og opnaði heimilið formlega. Þá ávarpaði Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, gesti, auk þess sem Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti flutti ávarp fyrir hönd sveitarstjórnarinnar. Frétt af mbl.is „Leyfi mér næstum að segja að það verði bylting“ Umboðsmaður barna, menntamálaráðherra og forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Ljósmynd/Stjórnarráðið Að loknum ávörpum gengu ráðherra og gestir um húsnæðið með leiðsögn starfsfólks sem veitti innsýn í daglegt starf meðferðarheimilisins. Þá var sýnd myndasyrpa sem rakti uppbyggingu Lækjarbakka og greint frá styrkveitingu frá Rebekkustúku nr. 4 innan Oddfellow til kaupa á hljóðfærum fyrir heimilið. Fram kemur að slíkur stuðningur nýtist í daglegu starfi og geti styrkt uppbyggjandi virkni, sköpun og jákvæða þátttöku ungmennanna. „Börn eiga aldrei að bíða eftir aðstoð“ „Það er stórt skref að Lækjarbakki sé kominn í fullan rekstur og að börn sem þurfa hjálp á meðferðarheimilum fái hana strax,“ segir Inga Sæland í tilkynningunni. „Börn eiga aldrei að bíða eftir aðstoð. Við eigum að grípa þau og standa með þeim – öllum börnum og alltaf. Við getum gert enn betur í þeim efnum og munum halda því áfram.“ Frá meðferðarheimilinu. Ljósmynd/Stjórnarráðið Ljósmynd/Stjórnarráðið Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda Skelfileg staða og engar aðgerðir Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Lars Løkke kyndir undir kóngi Bandaríkin skipuleggja flug fyrir farþega í skipinu Arteta: Ég veit það ekki Gróðureldur kviknaði í Mosfellsbæ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveirusmit aldrei rannsökuð hérlendis Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Forvitnaðist um greiðslu styrkja Áhættumatið tekur á veikleikum Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland 85 þúsund fengu 250 milljarða Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Lars Løkke kyndir undir kóngi Bandaríkin skipuleggja flug fyrir farþega í skipinu Arteta: Ég veit það ekki Gróðureldur kviknaði í Mosfellsbæ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Eru Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur ósammála um borgarlínu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Lars Løkke kyndir undir kóngi Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland 85 þúsund fengu 250 milljarða Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka