Innlent | mbl | 25.3.2026 | 14:00 Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Meðferðarheimilið Lækjarbakki var opnað á ný á þann 6. mars síðastliðinn. Ljósmynd/Stjórnarráðið Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags » Fleiri tengdar fréttir Ekkert barn er nú vistað á meðferðarheimilinu Lækjarbakka sem opnað var á ný í Gunnarsholti þann 6. mars síðastliðinn eftir að hafa verið lokað í tvö ár. Tveir drengir höfðu verið innritaðir á heimilið en þeir eru báðir komnir á neyðarvistun Stuðla eftir strok og uppákomu sem krafðist aðkomu lögreglu. Þetta herma heimildir mbl.is. Lækjarbakka, sem er langtímameðferðarúrræði fyrir drengi með fíknivanda, var lokað vegna myglu í byrjun apríl árið 2024. Ekkert langtímameðferðarúrræði fyrir drengi var því starfrækt í tæp tvö ár, eða um 700 daga, þrátt fyrir brýna þörf á slíku úrræði. Þar er rými fyrir sex drengi en öll meðferðarrýmin hafa staðið tóm síðustu daga. Frétt af mbl.is Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur Lækjarbakka, segist í svari við fyrirspurn mbl.is ekki geta tjáð sig um einstök mál eða atvik í starfseminni. Það sé þó þannig að skjólstæðingar séu stundum fluttir milli úrræða, eftir því hvað nýtist þeim best hverju sinni. Hún svarar ekki með beinum hætti hvort meðferðarheimilið standi autt eins og er, en tekur fram að tveir skjólstæðingar verði innritaðir á meðferðarheimilið á næstu dögum. Þá segir hún reglulega farið yfir verklag til að tryggja öryggi og velferð barna, enda sé það í forgrunni í starfi Barna- og fjölskyldustofu. Frétt af mbl.is 15 sinnum út um glugga: „Þetta er enginn edrútími“ Frétt af mbl.is Ítrekuð strok, alvarlegt slys en engar breytingar Talaði um opnun Lækjarbakka sem „byltingu“ Ólöf sagði í samtali við mbl.is eftir opnunina í byrjun mars að mikill uppsafnaður vandi væri til staðar. Taldi hún að opnun Lækjarbakka myndi hafa jákvæð áhrif á meðferðarkerfið í heild sinni. „Nú erum við að fá meðferðarheimili sem er algjörlega tekið í gegn með þarfir skjólstæðinganna að leiðarljósi. Þannig að það er líka nýbreytni að við séum með húsnæði sem algjörlega uppfyllir öll skilyrði um að vera meðferðarheimili og allar þær þarfir sem þarf fyrir svona starfsemi,“ sagði Ólöf. Þá sagði Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, í samtali við mbl.is í ágúst á síðasta ári að opnun Lækjarbakka myndi breyta miklu. „Ég leyfi mér næstum að segja að það verði bylting. Það mun breyta rosalega miklu. Þá komumst við meira út úr því ástandi sem við höfum verið í,“ sagði Funi í ágúst. Frétt af mbl.is „Leyfi mér næstum að segja að það verði bylting“ Frétt af mbl.is Mikill þroskamunur: „Þetta var svo fallegt mamma“ Strok verið vandamál víðar Sé horft til þess að skjólstæðingum hafi strax tekist að strjúka af Lækjarbakka virðist sama vera uppi á teningnum þar og á öðrum meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu þar sem ítrekuð strok hafa verið vandamál. Samkvæmt Ólöfu er Lækjarbakki ekki lokað úrræði í þeim skilningi að börn séu læst inni allan daginn, en starfsmenn eiga alltaf að fylgja börnunum og læst er á nóttunni. Börnin hafa ekki frelsi til að ganga inn og út af heimilinu að vild. Það megi því segja að einhverju leyti sé um lokað úrræði að ræða. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur talað fyrir lokuðum meðferðarúrræðum fyrir börn og unglinga með þyngsta vandann. Í samtali við mbl.is í byrjun árs sagði Inga slíkt úrræði nauðsynlegt til að tryggja öryggi barna með alvarlegan vanda, koma í veg fyrir að þau flýi meðferð eða verði sér úti um fíkniefni. Frétt af mbl.is Ítrekar nauðsyn lokaðra meðferðarúrræða fyrir börn Frétt af mbl.is Sonurinn allt annað barn: „Brosið er orðið einlægt“ Nokkrir foreldrar hafa brugðið á það ráð að fara með syni sína í fíknimeðferð til Suður-Afríku vegna úrræðaleysis hér á landi. Hafa mæður tveggja drengja lýst því í viðtölum hér á mbl.is að meðferðin hafi gengið vel og mikill árangur náðst. Foreldrar hafa hingað til þurft að greiða fyrir slíka meðferð úr eigin vasa. Starfshópur forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með fíknivanda kynnti nýlega tillögur sínar en þar er meðal annars lagt til að samið verði við meðferðarstofnanir erlendis til að tryggja að börn hafi aðgang að sérhæfðri meðferð, sé hún ekki í boði hér á landi. Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is Svona á að styrkja þjónustu við börnin Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stækka skólasamfélagið á Vífilsstöðum Telur heimilin vilja óverðtryggð lán Aldrei fleiri íslenskar einkaleyfisumsóknir borist Fullyrða að Slot verði rekinn Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Eldur kviknaði í bíl á Vesturlandsvegi „Það er allt undir í svona rannsókn“ Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Frysta þarf öll laun í landinu Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Stækka skólasamfélagið á Vífilsstöðum Telur heimilin vilja óverðtryggð lán Aldrei fleiri íslenskar einkaleyfisumsóknir borist Fullyrða að Slot verði rekinn Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Varari um sig og óttast um öryggi sitt Þorgerður segir ESB bera virðingu fyrir ferli Íslands Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Frysta þarf öll laun í landinu Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl