Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég vil svara fyrir mig núna“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.5.2026 | 18:45 „Ég vil svara fyrir mig núna“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, stendur við allt sem hún sagði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segist hafa þurft að verja sjálfa sig þegar hún var sökuð um ósannsögli í athugasemdakerfi undir frétt sem deilt var á Facebook-síðu Vísis um helgina, enda séu ekki margir aðrir sem komi henni til varnar. Hún stendur við hvert einasta orð og telur við hæfi að ráðherra tjái sig með þeim hætti sem hún gerði. „Ég vil svara fyrir mig núna. Ég læt ekki lengur kalla mig öllum illum nöfnum og ósannindamanneskju sem ekkert er að marka, sem er ósatt. Ef ég ver mig ekki sjálf þá get ég ekki séð að margir aðrir séu að stíga upp á dekk og geri það,“ segir Inga í samtali við mbl.is. Í fréttinni var greint frá því að langtímameðferðarheimilið Lækjarbakki hefði formlega verið opnað á ný í Gunnarsholti og fullyrt að nú væri engin bið eftir plássi á meðferðarheimili fyrir börn á unglinga á vegum ríkisins. Vísað var í tilkynningu frá Stjórnarráðinu, en einnig var greint frá málinu á mbl.is . Frétt af mbl.is Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Var „edrú og allsgáð“ Í athugasemdakerfinu voru einhverjir sem drógu þessa fullyrðingu í efa og gagnrýndu það úrræðaleysi sem blasað hefur við síðustu misseri í málefnum barna með fjölþættan vanda, sem mbl.is og Morgunblaðið hafa ítrekað fjallað um. Inga svaraði nokkrum athugasemdanna og lét stór orð falla. Hún fullyrti meðal annars að engin bið væri eftir meðferðarúrræðum og að ekki væri möguleiki á því að börn gætu verið í neyslu á Lækjarbakka. Þá krafðist hún þess að fólk rökstyddi fullyrðingar sínar og sagði að það væri „fjandans sama“ hvað hún gerði. „Öskrandi neikvæðni“ hljómaði allt í kring. Hún tekur það fram að fyrra bragði að hún hafi ekki verið undir áhrifum áfengis. „Ég get alveg sagt þér að allt sem ég skrifaði um helgina, edrú og allsgáð, ég meinti hvert einasta orð. Þvílíka ósvífni hef ég aldrei séð,“ segir hún og vísar þar til athugasemdanna undir fréttinni. Frétt af mbl.is „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Frétt af mbl.is Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi „Það er alveg óþarfi að kalla mann lygara“ Bendir Inga á að hún hafi verið sökuð um ósannsögli og segir að gefið hafi verið í skyn að opnun Lækjarbakka hafi verið einhver „kosningaflugeldasýning“, eins og hún orðar það. Þegar staðreyndin sé sú að heimilið hafi í raun verið opnað fyrir tveimur mánuðum. „Það þarf ekki alltaf að búa til eitthvað neikvætt. Það mætti stundum draga upp smá sólarglætu í gegnum sortann. Maður er að verða dálítið langþreyttur á þessari endalausu neikvæðni,“ segir Inga en hún vill meina að fjölmiðlar sækist eftir því að draga upp neikvæðni þegar góðir hlutir gerist. „Ég vil svara fyrir mig þegar það er verið að segja ósatt um mig og þegar það er verið að kalla mig lygara að ósekju, og það var það sem var verið að gera þarna. Það er alveg óþarfi að kalla mann lygara þegar maður er að segja satt.“ Frétt af mbl.is Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Frétt af mbl.is Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Allir skoðaðir sundur og saman Í einni athugasemd undir deilingu fréttar Vísis á Facebook viðrar kona áhyggjur sínar af því hvort börnin muni komast upp með að vera í neyslu á Lækjarbakka, eins og raunin hefur verið á öðrum meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu, en mbl.is og Morgunblaðið hafa ítrekað fjallað um þetta. Inga svarar og fullyrðir að enginn möguleiki sé á því að vera í neyslu á Lækjarbakka. Foreldrar, starfsfólk og stjórnendur Barna- og fjölskyldustofu hafa hins vegar sagt að erfitt sé að koma í veg fyrir að fíkniefnum sé smyglað inn á heimilin og því komi reglulega upp sú staða að börn séu í neyslu á meðan þau eru í meðferð. Nokkrir drógu þessa fullyrðingu ráðherra því í efa, en Inga stendur við orð sín. Hún segir meðferðarheimilið Lækjarbakka ólíkt öllum öðrum meðferðarheimilum fyrir börn og unglinga. „Það er hægt að fullyrða þetta. Þetta er allt annars eðlis. Þú ert varla kominn þarna inn þegar það er spes herbergi strax til vinstri þar sem allir eru teknir sem koma þar inn og þeir eru sannarlega skoðaðir sundur og saman. Það er enginn að fara þarna inn með fíkniefni.“ Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Fólk verði að lesa það sem stendur Varðandi þá fullyrðingu að engin bið sé eftir plássi fyrir börn með fíknivanda á meðferðarheimilum á vegum stjórnvalda, segist hún aðeins hafa átt við langtímaúrræðið Lækjarbakka. Hún fullyrti það engu að síður í samtali við mbl.is á föstudag, að ekki eitt einasta barn væri á biðlista eftir meðferðarúrræðum á Íslandi í dag. Einnig er það fullyrt í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að engin bið sé eftir plássi. Nokkrir drógu þá fullyrðingu ráðherra í efa, til að mynda foreldrar sem hafa reynslu af því að berjast við kerfið fyrir börn sín. Frétt af mbl.is Staðan verri en þegar lægsta punktinum var náð Sagði ein kona að það væru biðlistar eftir grunnmeðferð fyrir börn og unglinga með fíknivanda, þrátt fyrir að ekki væri bið eftir langtímameðferð. Þá voru einhverjir sem nefndu að barnaverndin setti ekki börn á biðlista nema talið væri að úrræðin hentuðu þeim. Það ætti ekki við í öllum tilfellum. Börn gætu því verið að bíða eftir úrræðum við hæfi, án þess að vera á biðlistum. „Fólk verður bara að lesa það sem stendur þarna. Við erum að opna sérstakt úrræði fyrir drengi sem þurfa á lengri tíma meðferð og eru ýmist með hegðunarvanda eða mjög erfiðan fíknisjúkdóm. það eru fimm laus pláss. Það er ekkert barn á bið varðandi þessi úrræði á vegum ríkisins í dag. Það liggur fyrir, alveg sama hvað hver segir. Ég hvet bara fólk, eins og þetta fólk, til að kynna sér hlutina betur áður en það ræðst upp á dekk og kallar mann lygara.“ Aðspurð hvort henni finnist viðeigandi að ráðherra stígi fram í athugasemdakerfinu á Facebook og svari með þeim hætti sem hún gerði, svarar hún því játandi. Þannig þér finnst þetta við hæfi og stendur við allt saman? „Ég stend við hvert einasta orð, já.“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 0:0 ÍBV - Valur, staðan er 16:16 Brasilíumaður á lista Manchester United Heitustu tískupíur landsins mættu til Karólínu Sverrir og Fríða gengu hraðast Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð „Ég vil svara fyrir mig núna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 0:0 ÍBV - Valur, staðan er 16:16 Brasilíumaður á lista Manchester United Heitustu tískupíur landsins mættu til Karólínu Sverrir og Fríða gengu hraðast Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Varar við verktöfum Umræðan vekur ugg meðal lækna Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article