- What: A government official responds to comments on a social media post.
- Impact: The post discusses child welfare and public services.
Innlent | mbl | 12.5.2026 | 10:55 Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, svaraði ummælum í kommentakerfinu á Facebook. Samsett mynd/Eyþór/Skjáskot Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fer mikinn í athugasemdakerfi undir frétt sem deilt var á Facebook-síðu Vísis um helgina. Þar svarar hún fyrir gagnrýni á meðferðarúrræði fyrir börn og það úrræðaleysi sem blasað hefur við síðustu misseri. Í umræddri frétt er fullyrt að engin bið sé eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna og er þar vísað í tilkynningu frá Stjórnarráðinu, en einnig var greint frá málinu á mbl.is . Í athugasemdakerfinu á Facebook virðast margir efast um að sú fullyrðing standist, til að mynda foreldrar sem hafa reynslu af því að berjast við kerfið fyrir börn sín. Inga virðist mjög ósátt við þá gagnrýni. „ Það er fjandans sama hvað maður gerir öskrandi neikvæðnin hljómar allt í kring. Það væri óneitanlega tilbreyting ef jákvæðnin fengi aðeins að brosa í gegnum sortann,“ segir Inga meðal annars í einni athugasemdinni. Frétt af mbl.is „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Frétt af mbl.is Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi „Þetta er sannleikurinn!“ Kona ein segir að það væri nú gott ef það væri nálægt sannleikanum að engir biðlistar væru til staðar og svarar Inga því nokkuð ákveðið: „ Þetta er sannleikurinn! þrátt fyrir neikvæðnis-niðurrifsraddirnar sem öskra sig hása hér. Virkilega dapurt þegar verið er að snúa ófremdarástindinu sem var viðvarandi til betri vegar að til séu þeir sem ekki einungis kynna sér málin ekkert heldur hafa list á því að tjá sig um eigin vanþekkingu.“ Konan svarar Ingu og segist þekkja vel til, enda hafi hún þurft að berjast fyrir sinn dreng. Önnur kona segir að það séu biðlistar eftir grunnmeðferð fyrir börn og unglinga með fíknivanda, þrátt fyrir að ekki sé bið eftir langtímameðferð. Þá eru einhverjir sem nefna það að barnaverndin setji ekki börn á biðlista nema talið sé að úrræðin henti þeim. Það eigi ekki við í öllum tilfellum. Börn geti því verið að bíða eftir úrræðum við hæfi, án þess að vera á biðlistum. „Þetta er BULL,“ segir Inga þá. Frétt af mbl.is Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Frétt af mbl.is „Þá brotnaði ég niður og fór að hágráta“ Mikill uppsafnaður vandi Í fréttinni er jafnframt er greint frá því að meðferðarheimilið Lækjarbakki í Gunnarsholti hafi formlega verið opnað á ný, en um tveir mánuðir eru síðan það tók til starfa. Á Lækjarbakka eru sex pláss, en þar er boðið upp á langtímameðferð fyrir drengi með alvarlegan fíknivanda. Heimilið var áður starfrækt á öðrum stað en því var lokað vegna myglu í apríl árið 2024. Ekkert langtímameðferðarheimili fyrir drengi var því starfrækt í tvö ár, eða þar til heimilið var opnað á ný í Gunnarsholti. Skapaðist því mikill uppsafnaður vandi, eins og forstjóri Barna- og fjölskyldustofu hefur lýst yfir. Vegna úrræðaleysisins tóku foreldrar nokkurra drengja með alvarlegan fíknivanda þá erfiðu ákvörðun að senda þá í langtímameðferð til Suður-Afríku. Frétt af mbl.is Staðan verri en þegar lægsta punktinum var náð Frétt af mbl.is Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „ENGINN möguleiki á neyslu“ Í einni athugasemd viðrar kona áhyggjur sínar af því hvort börnin muni komast upp með að vera í neyslu á Lækjarbakka, eins og raunin hefur verið á öðrum meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu, en mbl.is og Morgunblaðið hafa ítrekað fjallað um þetta. Inga svarar því á þessa leið: „Það er ENGINN möguleiki á því að vera í neyslu á Lækjarbakka.“ Frétt af mbl.is Börnin sem kerfið brást Frétt af mbl.is Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Bæði starfsfólk meðferðarheimila og stjórnendur Barna- og fjölskyldustofu hafa sagt að fíkniefnum sé reglulega smyglað inn á heimilin og að erfitt sé að koma í veg fyrir það. Því komi það alltaf fyrir öðru hverju að börn og unglingar séu í neyslu inni á meðferðarheimilunum. Foreldrar hafa lýst því í viðtölum á mbl.is að börn þeirra hafi jafnvel komist í sterkari efni inni á meðferðarheimilunum, heldur en þau höfðu prófað áður en þau fóru þangað inn. Þá var greint frá því á mbl.is í nóvember á síðasta ári að börn hefðu ítrekað smyglað fíkniefnum inn á neyðarvistun Stuðla. Efni sem meðal annars voru pöntuð í gegnum samfélagsmiðla sem þau komust inn á í gegnum Playstation-tölvu í sameiginlegu rými neyðarvistunarinnar. Frétt af mbl.is Svona smygla börnin inn fíkniefnum Frétt af mbl.is Smyglaði barni inn á Stuðla: „Mjög alvarlegt“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Staðan óásættanleg og bendir til kerfislægs vanda » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Liverpool í baráttunni um fyrirliða Hamranna Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Viðræðum um Grænland miðar vel Tveir sólarhringar af hlaupi Hættir í danska landsliðinu Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir vopnahléið vera í öndunarvél Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum Síðasti öruggi dagurinn er í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ Fylgjast vel með hantaveirunni „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Liverpool í baráttunni um fyrirliða Hamranna Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Viðræðum um Grænland miðar vel Tveir sólarhringar af hlaupi Hættir í danska landsliðinu Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varar við verktöfum Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu X26: Samhljómur um frekari vöxt Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Mest lesið Í gær Í vikunni Leynd yfir samskiptum Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Varar við verktöfum „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Valdimar Örnólfsson jarðsunginn Frjósamt fé á Einarsstöðum „Þetta kom flatt upp á okkur“ Fylgjast vel með hantaveirunni „Þessi föstudagur verður eitthvað annað!“ Innbrot tengt dýravelferð leiddi til dauða tíu smágrísa Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið