Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Börn hópast á samfélagsmiðil í dulargervi tölvuleiks

  • What: A study shows that children are increasingly using Roblox, a social media platform disguised as a video game.
  • Impact: Parents need to be aware of the risks and take steps to ensure their children's online safety.
Read Full Article →

„Börn læra um netöryggi frá foreldrum sínum,“ sagði Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Börnum sem nota TikTok, Instagram og Snapchat fækkar en á sama tíma fjölgar þeim sem nota Roblox, sem er einskonar samfélagsmiðill í dulargervi tölvuleiks. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar Börn og netmiðlar sem Netvís - Fjölmiðlanefnd og Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmdu. Netvís hefur sett verkfærakistu fyrir foreldra á vefinn til að aðstoða þau við að auka öryggi barna á samfélagsmiðlum. Skúli segir hins vegar að sumir miðlar gerir foreldrum erfitt fyrir þar sem þeir auðveldi börnum að sniðganga reglurnar. Það sé til dæmis hægt að skrá sig á Roblox án þess að nota tölvupóstfang. Morgunútvarpið er á Rás 2 milli klukkan 7 og 9 alla virka morgna.

Share this article