Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Viðskiptablaðið

Til­kynna skað­legar leitarniður­stöður til for­eldra

  • What: Meta introduces alerts for parents if children search for self-harm related content on Instagram
  • Impact: Parents of teenagers using Instagram in certain countries may receive notifications
Read Full Article →

Meta hefur tilkynnt að það muni notast við eftirlitstæki á Instagram til að geta látið foreldra vita ef börn á samfélagsmiðlinum leita ítrekað að hugtökum sem tengjast sjálfsvígi eða sjálfsskaða. Á vef BBC segir að þetta sé í fyrsta sinn sem Meta muni með fyrirbyggjandi hætti vara foreldra við ef börnin þeirra leiti að skaðlegu efni á Instagram. Kerfið mun eiga við foreldra og ungmenni sem eru skráðir með unglingaaðgang Instagram í Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu og Kanada. Hinar umræddu tilkynningar munu byrja að berast frá og með næstu viku. Sjá einnig Meta byrjar að loka á barnareikninga Góðgerðarstofnanir hafa hins vegar varað við þessari aðferð og óttast að tilkynningarnar gætu valdið enn meiri skaða. Andy Burrows, framkvæmdastjóri Molly Rose Foundation, segir að foreldrar vilji vissulega vita hvort barn þeirra eigi í erfiðleikum en telur að þessar tilkynningar muni valda foreldrum ótta, sem gætu verið illa undirbúnir fyrir viðkvæmar og erfiðar samræður.

Share this article