Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Morgunblaðið stendur við aprílgabbið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.4.2026 | 13:15 Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Skatturinn hefur hengt upp viðvaranir um aprílgabb í höfuðstöðvum sínum í Katrínartúni, þar sé engrar miskunnar að vænta. mbl.is/Eyþór Árnason Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Morgunblaðið og mbl.is standa við aprílgabb sitt í dag varðandi afslátt eða niðurfellingu kílómetragjalds hjá Skattinum. Það er aprílgabb, hvað sem hver segir. Sú frétt var sögð af því í Morgunblaðinu og á mbl.is í morgun að niðurfelling kílómetragjalds kynni að vera fær, en þó því aðeins að menn kæmu í afgreiðslu Skattsins í dag, 1. apríl, og fylltu þar út eyðublaðið RSK 01.04.26. Þetta er mest lesna frétt mbl.is í dag. Frétt af mbl.is Niðurfelling kílómetragjalds fær Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hlupu svo margir apríl niður í Hús íslenskra ríkisfjármála í Katrínartúni 6, að starfsmenn Skattsins sáu ástæðu til þess að hengja upp útprent af fréttinni með rauðum borða yfir, þar sem á stóð „aprílgabb“. Álag hefur einnig verið í símveri Skattsins af þessum sökum. Þá gaf Skatturinn út stutta fréttatilkynningu þar að lútandi og andæfði aprílgabbinu. Ekki steinn yfir steini Í fyrrnefndri 1. apríl-frétt var vitnað til orða Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um að hann sýndi því skilning að mörgum blöskruðu miklar verðhækkanir á eldsneyti ofan á kílómetragjaldið, en tugþúsundir hafa sett nafn sitt við undirskriftasöfnun þar sem afnáms kílómetragjaldsins er krafist. Haft var eftir Daða Má að í dag kynni að vera fær leið til þess að sækja um afslátt eða niðurfellingu kílómetragjaldsins vegna „sérstakra aðstæðna“ með því að fylla út fyrrgreint eyðublað. Þess væri þó aðeins kostur út daginn í dag, en þá lyki innleiðingu kílómetragjaldsins. Ekkert er hæft í því að ráðherra hafi sagt neitt af þessu, þó hann hafi haft vitneskju um að gabb væri í uppsiglingu. Staðið við gabbið Markmið aprílgabba er að láta fólk hlaupa apríl, fara erindisleysu. Að því leyti virðist gabbið hafa heppnast vel, þó starfsmenn Skattsins kvarti undan álagi og Snorri Olsen skattstjóri segist ekki vita til þess að Skatturinn hafi fengið formlega ábendingu um gabbið frá ráðuneytinu. Frjálsir fjölmiðlar leita ekki samþykkis stjórnvalda fyrir fréttaflutningi sínum eða aprílgöbbum. Morgunblaðið og mbl.is standa við aprílgabbið. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Söguleg lægð fyrir danskan fótbolta Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Handóðir prjónarar vildu fá uppskrift að skíðapeysunni hennar Erlu Ítalía setti óeftirsóknarvert met Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Vonast til að létta verulega á Landspítalanum Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista „Búinn að vera rosalegur sprettur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Andlát: Elías Héðinsson Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Söguleg lægð fyrir danskan fótbolta Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Handóðir prjónarar vildu fá uppskrift að skíðapeysunni hennar Erlu Ítalía setti óeftirsóknarvert met Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Þegar kallað er eftir samstöðu í stað umræðu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rukka fyrir vanskráningu á morgun Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Hundleiðinlegt að standa í þessu Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Andlát: Elías Héðinsson Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article