Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Vonum innilega að honum verði að þeirri ósk“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.4.2026 | 13:40 „Vonum innilega að honum verði að þeirri ósk“ Börnin segja í yfirlýsingunni að við meðferð máls móður þeirra hjá embætti landlæknis hafi óháður sérfræðingur verið fenginn til að skrifa álitsgerð um málið. „Niðurstaða hans var sú að ekki hefðu verið forsendur fyrir lífslokameðferð.“ Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki „Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sannleikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk.“ Þetta segir í yfirlýsingu sem börn Dönu Jóhannsdóttur hafa sent frá sér í tilefni þess að héraðssaksóknari hafi gefið út ákæru á hendur Skúla Tómasi hjartalækni fyrir manndráp. Skúli Tómas var grunaður um að hafa borið ábyrgð á andláti sex sjúklinga sinna en mál fimm þeirra voru felld niður og gefin út ákæra í einu þeirra. Börn Dönu, þau Beggi Dan Gunnarsson, Borghildur B. Hauksdóttir, Eva Hauksdóttir og Hugljúf Dan Jensen, segja í yfirlýsingunni að dánarorsök móður þeirra hafi verið fjölkerfabilun, sem sé fyrirsjáanleg afleiðing af því að hneppa manneskju í lyfjafjötra sem valdi því aftur að hún geti ekki borið sig eftir næringu og vökva. Dana lést 19. október 2019. Frétt af mbl.is Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Frétt af mbl.is Lögreglan rannsakar andlát 6 einstaklinga á HSS Ummælin eru óttaleg þvæla „Í tilefni af ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa út ákæru, hefur læknirinn látið hafa eftir sér að málið snúist um flókin læknisfræðileg atriði sem sé erfitt fyrir ákæruvaldið að átta sig á og að loksins verði nú hægt að fara yfir þetta heildstætt. Þessi ummæli eru óttaleg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heildstætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rannsókn. Ákæruvaldið áttaði sig á málsatvikum með aðstoð dómkvaddra matsmanna auk þess sem vitnaskýrslur voru teknar af miklum fjölda heilbrigðisstarfsfólks,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. Börnin segja enn fremur að við meðferð máls móður þeirra hjá embætti landlæknis hafi óháður sérfræðingur verið fenginn til að skrifa álitsgerð um málið. Ekki forsendur fyrir lífslokameðferð „Niðurstaða hans var sú að ekki hefðu verið forsendur fyrir lífslokameðferð. Sérfræðingar embættisins komust að sömu niðurstöðu og töldu meðferðina hafa borið öll einkenni lífslokameðferðar. Tveir dómkvaddir matsmenn komust einnig að þeirri niðurstöðu að sú meðferð sem hún fékk í síðustu legu sinni á HSS hafi borið einkenni lífslokameðferðar sem ekki voru forsendur fyrir. Að kröfu Skúla voru þeir látnir endurskoða matsgerðina og komust þá aftur að sömu niðurstöðu,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Skúli Tómas Gunnlaugsson, fyrrverandi yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, hefur nú verið ákærður fyrir manndráp í starfi. Við undirrituð erum uppkomin börn Dönu Jóhannsdóttur, sem héraðssaksóknari telur að hafi verið drepin á opinberu sjúkrahúsi. Dánarorsök hennar var fjölkerfabilun, sem er fyrirsjáanleg afleiðing af því að hneppa manneskju í lyfjafjötra sem valda því aftur að hún getur ekki borið sig eftir næringu og vökva. Í tilefni af ákvörðun héraðssaksóknara um að gefa út ákæru, hefur læknirinn látið hafa eftir sér að málið snúist um flókin læknisfræðileg atriði sem sé erfitt fyrir ákæruvaldið að átta sig á og að loksins verði nú hægt að fara yfir þetta heildstætt. Þessi ummæli eru óttaleg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heildstætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rannsókn. Ákæruvaldið áttaði sig á málsatvikum með aðstoð dómkvaddra matsmanna auk þess sem vitnaskýrslur voru teknar af miklum fjölda heilbrigðisstarfsfólks. Ein helsta niðurstaða hinna dómkvöddu matsmanna var þessi: "Nei, það voru ekki forsendur til að hefja lífslokameðferð en það voru forsendur til að halda áfram líknarmeðferð. Verklagi við framkvæmd líknandi/lífslokameðferð var ekki fylgt." Einnig komast hinir dómkvöddu matsmenn að þeirri niðurstöðu að sú lyfjameðferð sem móðir okkar sætti hafi ekki verið eðlileg að teknu tilliti til ástands hennar og sjúkdómsgreiningar. Skúli hefur borið því við að á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafi "lífslokameðferð" verið notað um líknarmeðferð í víðtækri merkingu. Það er í ósamræmi við framburð heilbrigðisstarfsfólks. Það er einnig í ósamræmi við þá skjalfestu staðreynd að Skúli setti móður okkar á fulla meðferð að endurlífgun þrem vikum áður en hún kom í hvíldarinnlögn á HSS, þann 1. ágúst 2019, en þá var hún umsvifalaust sett á lífslokameðferð. Við meðferð máls móður okkar hjá embætti landlæknis var óháður sérfræðingur fenginn til að skrifa álitsgerð um málið. Niðurstaða hans var sú að ekki hefðu verið forsendur fyrir lífslokameðferð. Sérfræðingar embættisins komust að sömu niðurstöðu og töldu meðferðina hafa borið öll einkenni lífslokameðferðar. Tveir dómkvaddir matsmenn komust einnig að þeirri niðurstöðu að sú meðferð sem hún fékk í síðustu legu sinni á HSS hafi borið einkenni lífslokameðferðar sem ekki voru forsendur fyrir. Að kröfu Skúla voru þeir látnir endurskoða matsgerðina og komust þá aftur að sömu niðurstöðu. Móðir okkar dó 19. október 2019. Við sendum kvörtun til landlæknis þrem vikum síðar, þann 11. nóvember 2019. Málið var í rannsókn í fimmtán mánuði, lauk þann 17. febrúar 2021. Okkur þótti það langur tími en í ljósi þess að málsmeðferðartími landlæknis er á bilinu 1-4 ár megum við víst teljast heppin. Kæra var lögð fram hjá lögreglu þann 23. febrúar 2021 og var svo rúm fimm ár í rannsókn, fyrst hjá lögreglu og svo héraðssaksóknara. Læknirinn var sviptur starfsleyfi tímabundið en var fljótt kominn aftur í vinnu á Landspítalanum og hefur starfað þar við að sinna sjúklingum meirihluta þess tíma sem málið hefur verið til rannsóknar. Þegar ákæra var gefin út afþakkaði Landspítalinn vinnuframlag lífslokalæknisins. Það þótti aftur á móti ekkert að því að hafa manninn í starfi á opinberu sjúkrahúsi, árum saman, þótt hann væri grunaður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúklinga. Læknamafían lýsti yfir stuðningi við Skúla og heilbrigðisráðherra kom í gegn lögum til verndar heilbrigðisstarfsfólki sem skaðar og drepur sjúklinga. Nánar tiltekið er lögreglu bannað að nota rannsóknargögn frá landlæknisembættinu við rannsókn sakamála. Það er bagalegt í þessu máli því gögn kvörtunarmálsins hafa mikilvægt sönnunargildi sem nú fer forgörðum. Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sannleikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk. Beggi Dan Gunnarsson Borghildur B. Hauksdóttir Eva Hauksdóttir Hugljúf Dan Jensen Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » “There’s always a spirit of love at the Blues Festival” Leik í Bestu deildinni flýtt Svona verður veðrið um páskana „Vonum innilega að honum verði að þeirri ósk“ Fresturinn rennur út í dag Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Nærri 30.000 manns skrifað undir Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Andlát: Elías Héðinsson Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Niðurfelling kílómetragjalds fær Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » “There’s always a spirit of love at the Blues Festival” Leik í Bestu deildinni flýtt Svona verður veðrið um páskana „Vonum innilega að honum verði að þeirri ósk“ Fresturinn rennur út í dag Umræðan Mótum nýtt húsnæðislánakerfi Kópavogur – miðja athafnalífs Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ „Búinn að vera rosalegur sprettur“ Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Mest lesið Í gær Í vikunni Niðurfelling kílómetragjalds fær Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Andlát: Elías Héðinsson Hádegismatur á þúsundkall Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Niðurfelling kílómetragjalds fær Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article