Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill að stjórnvöld lækki kolefnisgjaldið „hressilega“

  • What: A discussion about fuel prices and government intervention in Iceland.
  • Impact: This is a political and economic issue, not directly related to cybersecurity.
Read Full Article →

Eldsneytisverð hefur hækkað skarpt á undanförnum dögum vegna stríðsins í Íran. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, vill að stjórnvöld grípi inn í miklar verðhækkanir líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið. „Við erum því miður að sjá að þessi hækkunarfasi sem við erum að horfa á að verðið hækkar á hverjum degi. Hann er rétt að byrja og þetta á eftir að koma enn verra niður á heimilum og fyrirtækjum í landinu á næstu vikum að óbreyttu.“ Hann segir að hugsa verði í lausnum líkt og nágrannaþjóðir okkar hafa gert. „Okkar tillaga er að kolefnisgjaldið verði lækkað hressilega. Það var helmingi lægra í lok árs 2024 og hækkunin hefur verið snörp.“ Runólfur var gestur Kastljóss í gær. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Share this article