- What: China sets a 5% GDP growth target for 2026
- Impact: Reflects economic policy and growth expectations for the country
Kínversk yfirvöld hafa sett fram hagvaxtarmarkmið um 5% fyrir árið 2026 en markmiðið er það lægsta síðan 1991. Ákvörðunin var tekin á fundi leiðtoga Kommúnistaflokksins sem hittist í mars á hverju ári til að greina frá efnahagsmarkmiðum komandi árs. Á vef New York Times er meðal annars minnst á hagvaxtarmarkmiðið, sem verður á milli 4,5% til 5%, og segir þar að þetta endurspegli viðurkenningu frá stjórnvöldum um hægari hagvöxt í Kína. Fjármálamarkaðir fylgjast náið með hinni árlegu kynningu þar sem hún sýnir hvaða væntingar kínverskir stjórnmálamenn munu hafa gagnvart efnahagsþáttum í landinu. Sjá einnig Diageo íhugar sölu á eignasafni sínu í Kína Dan Wang, stjórnarformaður hjá Eurasia Group, segir að kínverska ríkisstjórnin sé meðvituð um efnahagsvandamálin sem Kína glímir við. Hið nýja opinbera markmið gefi þá til kynna að yfirvöld séu tilbúin að þola hægari vöxt til skamms tíma á meðan þjóðin einbeitir sér að langtímaefnahagsáformum. Hagvöxtur í Kína hefur verið í kringum 5% undanfarin þrjú ár en þjóðin hefur glímt við hátt atvinnuleysi meðal ungs fólks, minnkandi neyslu og fasteignakreppu. Aðrir utanaðkomandi þættir hafa þó haft áhrif en þar má nefna viðskiptastríð Donald Trumps sem hefur sett þrýsting á fyrirtæki og verksmiðjur að finna sér nýja markaði.