- What: Kópavogur limits wage increases to 2.5% in line with SÍ's inflation target
- Impact: Affects public sector wages in Kópavogur
Gjaldskrárhækkanir sem snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi verða takmarkaðar við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands (SÍ) á árinu 2026. Tillaga bæjarstjóra þess efnis var samþykkt í bæjarráði Kópavogs í morgun. Ákvörðunin nær til gjaldskrár leik- og grunnskóla, þar með talið frístundar, og taka breyttar gjaldskrár gildi 1.maí næstkomandi. Í tillögunni felst einnig að sá hluti gjaldskrárhækkana sem tóku gildi 1. apríl síðastliðinn og voru umfram 2,5% verður felldur niður. „Markmið aðgerðanna er að stuðla að stöðugleika á vinnumarkaði, hjaðnandi verðbólgu og lækkandi vaxtastigi, til hagsbóta fyrir íbúa og samfélagið í heild,“ segir í tilkynningu Kópavogsbæjar. „Eitt mikilvægasta hagsmunamál heimila um þessar mundir er að verðbólga hjaðni og að stýrivextir lækki. Það er verulegt áhyggjuefni hvernig verðbólga hefur þróast síðustu misserin með tilheyrandi vaxtahækkun,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri. „Mikið er í húfi fyrir samfélagið allt að forsendur kjarasamninga haldi næsta haust. Með þessum aðgerðum erum við í Kópavogi að leggja okkar af mörkum til að ná tökum á verðbólgunni og um leið standa vörð um ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna í Kópavogi.“ Fram kemur í greinargerð að áhrif ákvörðunarinnar á tekjur bæjarins séu óveruleg þegar horft er til gildandi fjárhagsáætlunar. „Hins vegar verður kostnaðurinn gríðarlegur fyrir samfélagið allt ef kjarasamningar losna.“