- What: Oil and gas price increases could lead to higher interest rates
- Impact: UK central bank may pause rate cuts
Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, gæti þurft að stöðva vaxtalækkunarferli sitt og jafnvel hækka stýrivexti ef olíu- og gasverð hækkar frekar vegna átakanna í Miðausturlöndum, að mati hagfræðinga. The Telegraph greinir frá. Breska hugveitan NIESR (The National Institute of Economic and Social Research) varar við að vextir gætu hækkað þar sem hækkun orkuverðs muni að líkindum ýta undir verðbólgu, sem mældist 3,0% í janúar. Hagfræðingur hugveitunnar Institute for Fiscal Studies, Ben Zaranko, tekur í sama streng og segir að mögulega þurfi að hækka vexti til að halda aftur af hækkun verðbólgunnar. Hann segir að eigið spálíkan breska fjármálaráðuneytisins gefi til kynna að vextir gætu þurft að hækka. Englandsbanki hefur lækkað stýrivexti um 1,5 prósentustig frá því í ágúst 2024. Peningastefnunefnd bankans hélt stýrivöxtum óbreyttum í 3,75% í byrjun febrúar en gaf til kynna að vextir yrðu líklega lækkaðir frekar á næstunni. Miðað við verðlagningu á afleiðumörkuðum telja markaðsaðilar nú 27% líkur á stýrivaxtalækkun í Bretlandi síðar í mánuðinum. Til samanburðar töldu þeir á föstudaginn – áður en stríðsátök í Miðausturlöndum leiddu til mestu hækkunar á olíu- og gasverði frá innrás Rússa í Úkraínu árið 2022 - að 86% líkur væru á vaxtalækkun í mánuðinum. Markaðsaðilar gera nú aðeins ráð fyrir einni vaxtalækkun í ár, samanborið við væntingar um tvær lækkanir í síðustu viku. NIESR varar hins vegar við að vextir gætu hækkað um allt að 0,8 prósentustig ef olíuverð fer upp í 100 dali á tunnu. Zaranko segist ekki útiloka að stýrivextir verði hækkaðir upp í 4% við næstu vaxtaákvörðun þann 19. mars. Hækkun vaxta yrði högg fyrir ríkisstjórn Verkamannaflokksins og Rachel Reeves fjármálaráðherra sem er sögð stóla á lægri fjármögnunarkostnað til að ná jafnvægi í ríkisreksturinn og búa þannig til aukið svigrúm fyrir útgjaldaaukningu. Sérfræðingar vara einnig við að hækkun orkuverðs muni rýra kaupmátt almennings í aðdraganda næstu þingkosninga.