Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News Viðskiptablaðið

Sjávarútvegur í ESB krefst aðgerða vegna olíuverðhækkana

  • What: Rising oil prices affecting European shipping
  • Impact: European shipping companies face financial strain
Read Full Article →

Talsmenn fyrirtækja í sjávarútvegi í Evrópu vara við því að ört hækkandi olíuverð hafi sett fiskiskipaflota Evrópusambandsríkja í afar erfiða stöðu. Fulltrúar frá Europêche, samtökum sjómanna í Evrópusambandinu sem hafa innanborðs 45.000 skip og 80.000 sjómenn, hittu nýlega Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, og kölluðu á fundinum eftir tafarlausri íhlutun á vettvangi ESB þar sem stríðið í Íran hafi valdið því að olíuverð hefur hækkað gríðarlega. Fyrirtækin vara við því að hækkun eldsneytisverðs sé að lama flota þeirra og hvetja til tafarlausrar samhæfðrar neyðaraðstoðar ESB. „Þetta er ekki lengur áhætta – þetta er veruleikinn,“ sagði Javier Garat hjá Europêche þegar hann lýsti hinni ört versnandi stöðu sem sjávarútvegurinn stæði frammi fyrir. Olíuverð hefur hækkað um meira en 70% á örfáum dögum og er nú í kringum 1,3 evrur lítrinn í mörgum höfnum í Evrópu en var 0,50 evrur fyrir þessa atburði. Hækkunin ásamt hærri flutningskostnaði og áframhaldandi truflunum á áhafnaskiptum hefur gert það að verkum að margar útgerðir geta ekki staðið straum af auknum kostnaði, að mati Europêche. Að sögn fulltrúa atvinnugreinarinnar hefur útgjaldaþrýstingurinn þegar haft afleiðingar. „Við erum vitni að færri skipum á sjó, truflunum á framboði á sjávarafurðum og alvarlegu tekjutapi fyrir sjómenn og áhafnir,“ segir Garat. Þó að sum aðildarríki hafi innleitt neyðaraðstoð eru viðbrögðin enn ómarkviss og tímabundin og í sumum tilfellum háð samþykki framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta hefur þrýst enn frekar á kröfur sjávarútvegsgeirans um samræmda nálgun innan alls Evrópusambandsins. Europêche hvetur framkvæmdastjórnina til að virkja tímabundið neyðarkerfi, svipað og ráðstafanir sem gripið var til í stórum kreppum að undanförnu, sem myndi ryðja veginn að hraðri og sveigjanlegri ríkisaðstoð. Einnig er kallað eftir aðlögun á reglum um aðstoð þannig að hámarksstyrkur verði settur á hvert skip og kallað er eftir auknum fjárhagslegum stuðningi í gegnum Evrópska fiskveiði- og fiskeldissjóðinn. Aðrar tillögur fela meðal annars í sér meiri sveigjanleika í kvóta og aðstoð við birgðahald. Europêche varar við því að hækkanir á olíuverði af þessari stærðargráðu sé ekki hægt að velta yfir á neytendur. Það vekji upp þær áhyggjur að leggja þurfi enn fleiri skipum og fyrirtæki neyðist til að hætta starfsemi.

Share this article