Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News Viðskiptablaðið

OR hækkaði hlut­fall álvarna úr 47% í 68%

  • What: Economic report on energy prices and company profits
  • Impact: Financial performance of energy companies
Read Full Article →

Íslensku orkufyrirtækin, sem selja langmest af sinni orku til álvera hafa notið góðs af hækkun álverðs enda eru samningarnir að einhverju leyti tengdir álverði. Líkt og Viðskiptablaðið hefur greint frá hefur álverð hækkað um 50% á síðustu tólf mánuðum. Tekjur Landsvirkjunar á síðasta ári námu 607,5 milljónum dollara samanborið við 560,9 milljónir dollara árið 2024. Landsvirkjun hagnaðist um 205 milljónir dollara árið 2025 en árið 2024 nam hagnaðurinn 161,6 milljónum. Hagnaðurinn jókst því um 27% milli ára. Í skýrslu stjórnar Landsvirkjunar segir að aukin hagnaður sé „aðallega tilkomin vegna hækkunar á álverði". Til að draga úr áhrifum álverðsbreytinga hefur Landsvirkjun gert afleiðusamninga (álvarnir), þar sem verð er fest eða fest á ákveðnu verðbili. Í árslok 2025 var gangvirði samninga vegna álverðsáhættu neikvætt um 13,6 milljónir dollara. Það þýðir að álverð hækkaði meira en samningarnir. Á árinu 2024 var gangvirði samninga jákvætt sem nemur 0,5 milljónum dollara. Samdráttur hjá OR í sölu til stóriðju Heildartekjur Orkuveitu Reykjavíkur námu 68,6 milljörðum króna í fyrra, þar af námu tekjur af raforkusölu 27,3 milljörðum samanborið við 25,8 milljörðum árið 2024. Þess ber að geta auk tekna af raforkusölu til stóriðju hefur OR tekjur af sölu á heitu vatni, almennri rafmagnssölu, fráveitu og köldu vatni. Orkuveitan hefur gert raforkusölusamninga í dollurum, sem tengdir eru við þróun heimsmarkaðsverðs á áli. Tekjur af raforkusölusamningum, sem tengdir eru álverði námu 7,9 milljörðum króna eða 11,6% af heildartekjum samstæðunnar á árinu 2025 samanborið við 9,1 milljarð og 13,6% árið 2024. Er þetta sala til Norðuráls á Grundartanga en tekjurnar dragast saman milli ára vegna bilunarinnar hjá Norðuráli í október síðastliðnum. Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá þá hefur OR staðið í deilum við Norðurál vegna þessa og er málið á leið fyrir gerðardóm. Norðurál ber fyrir sig Force Majeure aðstæður, sem OR hefur hafnað. Sjá einnig OR í hart við Norðurál og Lands­net Til að draga úr álverðsáhættu hefur Orkuveitan gert afleiðusamninga líkt og Landsvirkjun. Í lok árs 2024 voru 47% af samningsbundinni álverstengdri sölu í slíkum samningum. Ári seinna var þetta hlutfall komið í 68%, sem þýðir að Orkuveitan er að verja sig betur gegn sveiflum í álverði. Innleyst álvörn á árinu var neikvæð sem nemur 166 milljónum króna í fyrra en árið 2024 var hún jákvæð sem nemur 152 milljónum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesð fréttina í heild hér .

Share this article