Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þúsundir Íslendinga í snemmbúið páskafrí

  • What: A report on increased travel and reduced traffic during Easter in Iceland.
  • Impact: This is a general news story about travel patterns, not related to cybersecurity.
Read Full Article →

Ætla má að þúsundir Íslendinga séu á faraldsfæti um helgina. Bráðabirgðatölur Vegagerðarinnar sýna að umferð á helstu umferðaræðum hefur dregist saman um 20 til 30 prósent á milli vikna. Páskahelgin er ein helsta ferðahelgi ársins og er til að mynda eini tími ársins þar sem bílastæðin við Keflavíkurflugvöll fyllast. Á tímabilinu 28. mars til 10. apríl fara 120 flug frá Keflavík til áfangastaða í sólina og annað eins til flugvalla í grennd við Alpana þangað sem skíðaþyrstir Íslendingar sækja gjarnan. Eins ferðast fjölmargir innanlands, hvort sem það er á skíði fyrir norðan eða á Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Nú eða í sumarbústað í Grímsnesi. Þeir sem standa vaktina í atvinnulífinu hafa vafalaust tekið eftir að umferðin í morgun og síðustu daga hefur verið töluvert léttari en venjulega. Það sýna tölur sem Vegagerðin tók saman fyrir fréttastofu. Samkvæmt þeim dróst umferð um Reykjanesbraut við Smáralind saman um 20 prósent í morgun miðað við sama tíma í síðustu viku. Er þá miðað við umferð milli klukkan sjö og níu um morguninn. Umferð dróst enn meira saman á Reykjanesbraut við Hafnarfjarðarlæk, þar fækkaði bílum um 29 prósent á sama tímabili. Það sama er að segja á Akureyri, teljari Vegagerðarinnar á hringveginum við Hof mældi 21 prósent færri bíla í þessari viku en í síðustu viku.

Share this article