- What: Trump makes claims about Iran requesting a weapons deal
- Impact: International tensions and political statements
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa óskað eftir vopnahléi og ætlar að halda ávarp um stöðuna í stríðinu í kvöld. Írönsk stjórnvöld segja ekkert hæft í fullyrðingum Trumps. Stríð Ísraela og Bandaríkjanna gegn Íran hefur staðið síðan í lok febrúar og óbeinar viðræður Bandaríkjanna og Írans virðast litlu skila. Trump sagði í færslu á Truth Social í dag að nýr forseti Írans hefði beðið Bandaríkin um vopnahlé. Hann kvaðst ætla skoða þetta þegar Íranir hefðu opnað fyrir skipaflutninga um Hormússund. Margir klóruðu sér í höfðinu yfir þessu, ekki síst vegna þess að forseti Írans, Masoud Pezeshkian, hefur setið í því embætti síðan sumarið 2024. Æðstiklerkurinn Mojtaba Khamenei, hins vegar, er nýlega tekinn við eftir að faðir hans var felldur í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Æðstiklerkurinn er almennt talinn áhrifamesti ráðamaður Írans. Kalla framferði Trumps skrípaleik Íranska utanríkisráðuneytið vísaði fullyrðingum Trumps alfarið á bug og sagði að Hormússund yrði ekki opnað fyrir tilstilli „skrípaleiks Bandaríkjaforseta“, líkt og það var orðað í írönsku ríkissjónvarpi. Nokkur skip hafa fengið að sigla um Hormússund en ekkert bendir til þess að það verði opnað að fullu á næstunni. Trump sagði í færslu sinni í dag að þar til það yrði gert myndu Bandaríkin láta sprengjum rigna yfir Íran. Til stendur að Trump fari yfir stöðuna í stríðinu í ávarpi frá Hvíta húsinu í nótt að íslenskum tíma.