- What: Iranian protesters at Efstaleiti
- Impact: Political unrest in Iceland
Innlent | mbl | 4.3.2026 | 22:10 Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Diljá Mist heilsar Írönum sem voru viðstaddir þingfund í dag á þingpöllunum. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Hafa mögulega opnað Pandórukistu Macron biðlar til Netanjahú að beita ekki landhernaði Flýja Íran með von um að snúa fljótt aftur Nýtt kort sýnir umfang átakanna síðustu daga » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ » Fleiri tengdar fréttir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það hafa verið sérstakt að hlusta á Silfrið á mánudaginn á Ríkisútvarpinu á mánudaginn. Þar hafi lítið farið fyrir þeim hörmungum sem íranska þjóðin hafi þurft að þola síðastliðna áratugi. Diljá gerði stöðuna í Íran að umfjöllunarefni sínu í ræðustól Alþingis í störfum þingsins í dag. Íranar hér á landi hyggjast mótmæla einsleitri umfjöllun RÚV við útvarpshúsið í Efstaleiti á laugardaginn. Í Silfrinu á mánudag voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda og Amid Deryat, Írani sem búið hefur hér á landi í yfir 30 ár, gestir Sigríðar Hagalín Björnsdóttur þáttarstjórnanda. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokkins, í ræðustól Alþingis fyrr í dag. mbl.is/Eyþór Ekki furða að Íranar ætli að mótmæla Diljá rifjaði upp þá erfiðleika sem íranska þjóðin hefur þurft að glíma við allt frá byltingunni þar í landi árið 1979 sem leiddi til þess að klerkastjórnin undir stjórn Ruhollah Khomeini komst til valda. Síðan þá hafi staða mannréttinda verið ömurleg, frelsi fólks takmarkað, almennir borgarar verið teknir af lífi og réttindi kvenna og samkynhneigðra fótum troðin. „Við hlustun á þátt RÚV varð mér hugsað til einstakra samtala sem ég hef átt við Rússa sem finna Bandaríkjunum og reyndar Evrópusambandinu allt til foráttu. Þeir sem telja að óstjórnin í Íran skrifist á viðskiptabann eru þá væntanlega sama sinnis varðandi Rússland. Við hljótum því að eiga von á þeim sjónarmiðum von bráðar í Ríkisútvarpinu. Reyndar má finna viðlíka sjónarmið á Samstöðunni,“ sagði þingmaðurinn úr ræðustól í dag. Benti Diljá á það að klerkastjórnin hefði brotið á bak mótmæli skömmu áður en árásir hófust þar í landi. Tugir þúsunda almennra borgara féllu í mótmælunum í upphafi árs. „Þessi skipulögðu fjöldamorð á óbreyttum borgurum eru ein þau verstu sem hafa sést eftir seinna stríð. Það er því kannski ekki furða að borgarar, þeir sem hafa flúið ógnarstjórn klerkanna, andmæli einsleitri umræðu og því sem þeir telja vera áróður með mótmælum fyrir utan RÚV næstkomandi laugardag. Vonandi sjáum við frið og bjarta framtíð fyrir Íran innan skamms,“ sagði Diljá að lokum. Tengdar fréttir Íran Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Hafa mögulega opnað Pandórukistu Macron biðlar til Netanjahú að beita ekki landhernaði Flýja Íran með von um að snúa fljótt aftur Nýtt kort sýnir umfang átakanna síðustu daga » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kristrún: „Hvað erum við að bauka?“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fyrsta tap Carrick kom gegn 10 Newcastle-mönnum – Óvænt dönsk hetja Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Orri í bikarúrslit á Spáni Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Koma bara ef þeir fá læknishjálp Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Fyrsta tap Carrick kom gegn 10 Newcastle-mönnum – Óvænt dönsk hetja Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Orri í bikarúrslit á Spáni Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Koma bara ef þeir fá læknishjálp Umdeild próf lögð fyrir nema Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“