- What: EU enlargement negotiations are discussed
- Impact: The term 'negotiations' is considered misleading in the context of EU accession
Erlent | Morgunblaðið | 9.3.2026 | 10:20 Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Ursula von der Leyen er forseti framkvæmdastjórnar ESB. AFP/Simon Wohlfahrt Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Hitafundur í þinginu í dag Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Segir tímasetninguna vonda » Fleiri tengdar fréttir Í upplýsingabæklingi sem Evrópusambandið hefur gefið út til upplýsingar um stækkun sambandsins (e. Understanding Enlargement) kemur fram að ekki sé í boði að semja um reglur ESB og í því tilliti geti hugtakið samningaviðræður verið villandi. Viðræðurnar snúist aðeins um skilyrði og tímasetningar upptöku, innleiðingar og framkvæmdar umsóknarríkis á reglum sambandsins. Bæklingnum er ætlað að útskýra umsóknarferli ríkja að sambandinu. Í bæklingnum segir: „Samningaviðræður um inngöngu snúast um getu umsóknarríkisins til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja aðild [að sambandinu]. Hugtakið „samningaviðræður“ getur verið villandi. Viðræðurnar snúast um skilyrði og tímasetningar aðlögunar umsóknarríkis, innleiðingar og framkvæmdar reglna Evrópusambandsins – sem telja um 100.000 blaðsíður. Og þessar reglur (einnig þekktar sem „acquis“, franskt hugtak um það sem hefur verið samþykkt) eru ekki umsemjanlegar.“ Undanþágur ekki í boði lengur Þetta kemur heim og saman við fullyrðingu Heather Grabbe, sérfræðings um stækkunarmál ESB, í viðtali sem RÚV birti á föstudaginn. Hún var spurð út í þrætuepli Íslendinga undanfarið, þ.e. hvort það væri í reynd um eitthvað að semja. „95% af reglubók ESB eru óumsemjanleg því reglurnar hafa þegar verið samþykktar af 27 aðildarríkjum sambandsins. Aðrir hafa gengið inn í sambandið og þurft að samþykkja allt. En ríki sem vill aðild getur alltaf samið um tímalínu innleiðingar ESB-reglna og reglugerða. Á sama tíma mun ESB vilja setja einhverja tímalínu á innleiðingu hlunninda. Sem dæmi þurftu pólskir bændur að bíða í áratug eftir að fá allar sínar niðurgreiðslur samkvæmt sameiginlegri landbúnaðarstefnu sambandsins. Það er því hægt að semja um aðlögunartíma en það eru engar undanþágur í boði lengur,“ sagði Grabbe. Hvort tveggja kemur heim og saman við það sem Uffe Ellemann-Jensen heitinn, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, sagði við mbl.is í mars 2017. Hann var mjög áfram um að Ísland gengi í Evrópusambandið. „Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það besta sem þið getið gert,“ sagði hann. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Hitafundur í þinginu í dag Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Segir tímasetninguna vonda » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr leiðtogi endist ekki án samþykkis Trumps Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Ótvíræður réttur barna brotinn Mest lesið Í gær Í vikunni Sprengju kastað fyrir utan heimili borgarstjórans Hver er Mojtaba Khamenei? Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Dregur til tíðinda í fimm ára gömlu drápsmáli „Kúba dregur sín síðustu andartök“ Kínverjar andvígir því að Khamenei verði skotmark Á fjórða tug særðir í Barein eftir árásir Írana Olíuverð ekki verið hærra í fjögur ár Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Gerðu árás á hótel í miðborginni Bandaríski herinn varar almenna borgara við „Þetta atvik er ótækt“ Leggur til loftárásir gegn eiturlyfjahringjum Gerðu árás á hótel í miðborginni Tólf ára drengur meðal átta látinna Blair ósáttur: Vinir standa með manni í krísu Fundu smyglkafbát í feni Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Svíar stöðvuðu skip úr skuggaflota Rússa Sprengt víða við Persaflóa Trump ósáttur: „Að öllum líkindum aldrei gerst áður“ Bandarískar þotur hröpuðu: Áhafnir á sjúkrahúsi „Íranir hafa tapað öllu“ Boðar til blaðamannafundar vegna yfirlýsinga Trumps Furðuleg útbrot á hálsi Trumps Ford kominn í Rauðahafið: Gæti slegið tvö met Segir að Íran hafi gert mistök Þetta var í tunnunum í Skien Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Nýjast á mbl.is » Birgitta Líf komin með nýja vinnu Segja „samningaviðræður“ vera villandi hugtak Farþegamiðstöðin komin með nafn Erró mikils metinn í Frakklandi Instagram: Birgitta og Berglind klæddu sig eins Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hver er Mojtaba Khamenei? Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Svaðilför á Borgarfirði eystri Mest lesið Í gær Í vikunni Sprengju kastað fyrir utan heimili borgarstjórans Hver er Mojtaba Khamenei? Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Dregur til tíðinda í fimm ára gömlu drápsmáli „Kúba dregur sín síðustu andartök“ Kínverjar andvígir því að Khamenei verði skotmark Á fjórða tug særðir í Barein eftir árásir Írana Olíuverð ekki verið hærra í fjögur ár Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Gerðu árás á hótel í miðborginni Bandaríski herinn varar almenna borgara við „Þetta atvik er ótækt“ Leggur til loftárásir gegn eiturlyfjahringjum Gerðu árás á hótel í miðborginni Tólf ára drengur meðal átta látinna Blair ósáttur: Vinir standa með manni í krísu Fundu smyglkafbát í feni Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Svíar stöðvuðu skip úr skuggaflota Rússa Sprengt víða við Persaflóa Trump ósáttur: „Að öllum líkindum aldrei gerst áður“ Bandarískar þotur hröpuðu: Áhafnir á sjúkrahúsi „Íranir hafa tapað öllu“ Boðar til blaðamannafundar vegna yfirlýsinga Trumps Furðuleg útbrot á hálsi Trumps Ford kominn í Rauðahafið: Gæti slegið tvö met Segir að Íran hafi gert mistök Þetta var í tunnunum í Skien Flugmóðurskip Írana í ljósum logum