Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úkraína og Rúmenía undirrita samkomulag um drónaframleiðslu

  • What: Ukraine and Romania sign agreement to start drone production in Romania.
  • Impact: Strengthening defense cooperation between the two countries.
Read Full Article →

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Nicușor Dan, forseti Rúmeníu.EPA / Robert Ghement Stjórnvöld í Úkraínu og Rúmeníu hafa náð samkomulagi um að hefja drónaframleiðslu í Rúmeníu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Nicușor Dan, forseti Rúmeníu, undirrituðu samkomulag þess efnis í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Drónarnir verða framleiddir í Rúmeníu með úkraínsku hugviti og sérfærðiþekkingu og verkefnið er styrkt af varnarmálaverkefni Evrópusambandsins sem kallast Öryggi fyrir Evrópu. Forsetarnir undirrituðu einnig orkusamning sem felur í sér aukið raforkuöruggi milli landanna. Þá ræddu þeir einnig mögulegt samstarf í framleiðslu á olíu og gasi í Svartahafi.

Share this article