Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Atlantshafsbandalagið (NATO) sé öflugasta varnarbandalag seinni tíma. Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATO, sem sé pappírstígur að hans mati. En gremja forsetans gagnvart bandalagsríkjum virðist fyrst og fremst vera vegna tregðu þeirra til að blanda sér í átökin í Íran. „Ég ætla nú að fara varlega í allar yfirlýsingar, annað en að það er mikilvægt að hafa í huga að þetta varnarbandalag hefur verið farsælt fyrir öll aðildarríkin og þar með talið Bandaríkin,“ segir Þorgerður Katrín spurð hvort fullyrðingar forsetans séu áhyggjuefni fyrir Ísland. Hún segir Ísland taka skuldbindingar sínar alvarlega og ríki Evrópu og Kanada hafi stigið verulega upp á síðustu árum. En bara svo það sé skýrt. Láti Bandaríkjamenn verða af þessu að ganga úr NATO þá þýðir það einfaldlega að varnarsamningurinn við Bandaríkin er úr sögunni. „Ég ætla ekki að fara út í neinar vangaveltur hvað það varðar. Ég held að það sé rétt að undirstrika að fimmta grein NATO-sáttmálans, sem skírskotar líka í sáttmála Sameinuðu þjóðanna, hún hefur bara einu sinni verið virkjuð. Það var í þágu Bandaríkjanna eftir árásina á tvíburaturnana. Og við sjáum það á sögunni að það hafa ýmsar yfirlýsingar verið gefnar en eftir stendur að NATO er sterkara sem aldrei fyrr.“