Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 7:00 Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti Gunnar Pálsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Stór orð hafa nýlega verið látin falla um framtíð NATO beggja vegna Atlantshafsins. Ef taka ætti þau bókstaflega væri íslenska þjóðin, sem byggt hefur varnir sínar nær alfarið á aðild sinni að bandalaginu og tengdum tvíhliða varnarsamningi hennar við Bandaríkin, ugglaust í nokkrum vanda. Margt hefur vissulega gengið á í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu að undanförnu. Enn er þó sem betur fer fjarri lagi að feigðin kalli að varnarsamstarfinu. Það er engin ný bóla að tekist sé á í röðum bandalagsríkjanna. Bandaríkin hafa lengi gagnrýnt Evrópu fyrir að axla ekki sinn hluta byrðanna af sameiginlegum vörnum. Þau hafa heldur ekki farið leynt með áform sín um að draga úr vægi Evrópu en gefa öðrum heimshlutum meiri gætur. Frá því snemma á tíunda áratugnum hafa Bandaríkin raunar jafnan ætlað Evrópu að fylgja þeim að málum utan sem innan hins hefðbundna varnarsvæðis, þótt einstök ríki hafi spyrnt við fótum, líkt og Frakkland og Þýskaland gerðu í innrásinni í Írak árið 2003. Ákveðin þáttaskil urðu þó við stjórnarskiptin í Washington í fyrra. Síðan þá hafa Bandaríkin kosið að fylgja utanríkisstefnu sinni eftir á umbúðalausari hátt en venja hefur verið. Evrópuríkin hafa verið knúin til að auka framlög sín til varnarmála. Vöruviðskipti sem Bandaríkin hafa talið sér óhagstæð sæta íþyngjandi tollum. Talsmenn bandarískra stjórnvalda hafa iðulega veist að hinum sameiginlegu stofnunum Evrópuríkjanna. Loks varð Evrópuleiðtogum ekki um sel eftir að forsetinn áréttaði meira en 150 ára gamlan áhuga Bandaríkjanna á að festa sér af þjóðaröryggisástæðum hluta af evrópsku landsvæði, Grænland. Undirrót þeirrar ókyrrðar sem svip setur á samstarfið um þessar mundir má þó einnig rekja til Úkraínustríðsins. Frá því Trump kom til valda hafa Bandaríkin reynt að ná samkomulagi við Rússland sem gera mætti þeim kleift að beina kröftum sínum annað en til Úkraínu. Þessar tilraunir, árangurslausar hingað til, hafa mætt staðfastri andstöðu flestra Evrópuríkjanna, sem óttast m.a. að sitja uppi með Svarta-Pétur í viðureign sinni við rússneska björninn, fari svo að sættir takist með stórveldunum tveimur og Bandaríkin dragi úr viðveru sinni í Evrópu. Þannig hafa Evrópuríkin sjálf komið sér í þá mótsagnakenndu stöðu að hafa hvorki vilja né burði til að leysa Bandaríkin af hólmi í Úkraínu, en sætta sig ekki heldur við að endi verði bundinn þar á átökin. Ástandið í Mið-Austurlöndum sem brast á með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 28. febrúar sl. bætist síðan ofan í kaupið. Stríðið hefur undirstrikað þann vanda sem Bandaríkjunum er á höndum hyggist þau halda úti langvarandi vopnaðri baráttu á tvennum eða fleiri fjarlægum vígstöðvum samtímis. Ólíkt fyrri fordæmum virðast Bandaríkin að þessu sinni hafa látið til skarar skríða án þess að ráðgast við Evrópuríkin, sem meira áttu þó undir því en Bandaríkin að umferð héldist greið um Hormússund. Fordæmalaust er engu að síður að bandalagsríki ýmist neiti Bandaríkjunum um afnot af eigin herstöðvum eða yfirflugsréttindi í tengslum við aðgerðir sem þau síðarnefndu telja í þágu þeirra eigin þjóðaröryggis. Kemur því ekki á óvart, hafi bandarískum stjórnvöldum skyndilega fundist þau hafa lítið fyrir sinn snúð og snældu eftir að hafa borið uppi varnir Evrópu í nærfellt átta áratugi. Uppsöfnuð þykkja á vafalítið sinn þátt í því að núverandi forseti hefur látið í veðri vaka að Bandaríkin kynnu að draga sig út úr Atlantshafssamstarfinu, í sama mund og Evrópuleiðtogar virðast í fyrsta skipti reiðubúnir til að leiða hugann að mögulegri framtíð álfunnar án NATO. Endalok bandalagsins eru hins vegar hvorki fyrirsjáanleg né yfirvofandi. Þar veldur mestu að Bandaríkin hafa sjálf af því stóran ávinning að gegna áfram forystuhlutverki, en með því geta þau tryggt sína eigin áhrifastöðu, ekki síður en að viðhalda stöðugleika í álfunni. Svo lengi sem annað og betra tæki er Bandaríkjunum ekki tiltækt til að ná þessum sömu markmiðum bendir því fátt til annars en að bandalagið haldi velli. Hvað Evrópuríkin sjálf snertir verða þau enn um sinn háð Bandaríkjunum um öryggi sitt og varnir, hvort sem áætlanir ESB um endurvígvæðingu ríkja sambandsins koma fyrr eða síðar til framkvæmda. Standi NATO af sér styrinn, líkt og varnarbandalags er von og vísa, útilokar það ekki að starfsemi þess verði aðlöguð breyttum aðstæðum. Á það ekki síst við taki Evrópuríkin meiri ábyrgð í samstarfinu, en efling hinnar evrópsku stoðar þess er mótdræg hvorki tengslunum yfir Atlantshafið né tvíhliða varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna. Sýni Evrópuríkin raunverulegan metnað til að láta að sér kveða á hernaðarsviðinu hníga raunar flest rök að því að Bandaríkin muni leggja enn meiri áherslu á áframhaldandi tvíhliða varnarsamstarf sitt við Ísland. Þó ekki væri nema af þessum sökum kynnu aðilar sem freistast hafa til að gera það samstarf tortryggilegt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB að vilja hugsa sig tvisvar um. Gunnar Pálsson fyrrverandi sendiherra Íslands hjá NATO. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti 53 ára kryddpía í þrusuformi Fólk flykkist heim þrátt fyrir viðvaranir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Engin stemning fyrir flokkshroka Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kennarasambandið braut jafnréttislög Óvíst um virkni rofni samband Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Veruleg skerðing á bílastæðum X26: Hiti í pólitíkinni í Eyjum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti 53 ára kryddpía í þrusuformi Fólk flykkist heim þrátt fyrir viðvaranir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Óábyrgt að fara að lofa einhverju Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kennarasambandið braut jafnréttislög Óvíst um virkni rofni samband Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Veruleg skerðing á bílastæðum X26: Hiti í pólitíkinni í Eyjum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article