Frambjóðendur Framsóknar í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2026.Aðsend / Framsókn Borgarbyggð Davíð Sigurðsson, sauðfjárbóndi og hrossaræktandi, er oddviti Framsóknar í Borgarbyggð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Fjölmennur félagsfundur samþykkti lista Framsóknar í kvöld, að því er segir í tilkynningu. Framsókn hefur hreinan meirihluta í sveitarstjórn Borgarbyggðar frá því eftir seinustu kosningar. Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar, skipar 18. sætið. Þessi eru í fimm efstu sætunum: Davíð Sigurðsson formaður byggðarráðs Borgarbyggðar og bóndi Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir lögfræðingur Jón Eiríkur Einarsson oddviti Skorradalshrepps og bóndi Guðdís Jónsdóttir bóndi og ritari. Jón Theódór Jónsson framkvæmdastjóri.