Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 11:26 Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa Unnu í raun í Víkingalottóinu Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði » Fleiri tengdar fréttir Borgarbyggð gengur nú í fyrsta skipti til kosninga eftir sameiningu við Skorradalshrepp. Töluverð uppbygging hefur átt sér stað á kjörtímabilinu og gert er ráð fyrir að hún haldi áfram næstu árin. Ýmsar áskoranir hafa fylgt móttöku flóttafólks frá Úkraínu og breytingar á lögum um jöfnunarsjóð hafa haft neikvæð áhrif á sveitarfélagið. Ekki er mikill málefnalegur ágreiningur á milli framboða en lögð er áhersla á að fjölga íbúum og styrkja atvinnulíf, ásamt því að styrkja grunnþjónustu sveitarfélagsins. Í kappræðum í Hádegismóum mættust þeir Davíð Sigurðsson oddviti Framsóknarflokksins, Þórður Brynjarsson, sem skipar 2. sæti á lista Miðflokksins, Sigurður Guðmundsson oddviti Sjálfstæðisflokksins og Hermann B. Valsson, sem skipar 2. sæti Borgarbyggðarlistans. Framsóknarflokkurinn hefur verið í hreinum meirihluta í sveitarfélaginu á þessu kjörtímabili, og sagði Davíð, oddviti flokksins, ákall hafa verið fyrir síðustu kosningar um að rjúfa ákveðna kyrrstöðu sem hafði myndast í sveitarfélaginu. Telur hann núverandi sveitarstjórn hafa sinnt því ákalli vel. Taldi hann upp þær framkvæmdir sem ráðist hefði verið í, meðal annars byggingu nýs knatthúss, mikla gatnagerð, úrbætur á skólahúsnæði og opnun nýs leikskóla. Hljóti að vera reikningsskekkja Sagði hann helstu áskoranir sem sveitarfélagið stæði frammi fyrir núna og næstu misseri vera minna fjárframlag frá ríkinu. Ný lög um jöfnunarsjóð geri það að verkum að Borgarbyggð fái um 200 milljónum króna lægra framlag en gert hafi verið ráð fyrir, á meðan önnur sambærileg sveitarfélög fái sömu upphæð sem hækkun. „Þetta setur verulegt strik í reikninginn hjá sveitarfélagi eins og okkar,“ sagði Davíð og benti á að framlag jöfnunarsjóðs væri í kringum 30 prósent af tekjum sveitarfélagsins. Hann sagðist þó ekki telja að auka þyrfti álögur á íbúa. „Ég bind vonir við að þetta hljóti að vera reikningsskekkja,“ sagði hann jafnframt, en verið væri að rýna málið. Þá nefndi hann einnig að ríkið væri nú hætt að endurgreiða sveitarfélaginu fyrir að veita flóttafólki fjárhagsaðstoð. Vísaði hann þar til um 100 úkraínskra flóttamanna sem búa á Bifrastarsvæðinu. „Þetta hefur ofboðslega mikil áhrif á ekki stærra sveitarfélag en okkar, þegar við erum með hátt í 100 manns sem reiða sig alfarið á framfærslu frá sveitarfélaginu,“ sagði Davíð. Fáist ekki leiðrétting blasi erfið staða við. „Staðan er í raun og veru afleit. Það endar þannig að sveitarfélagið þarf að fara í niðurskurð á einhverjum öðrum þjónustuþáttum við aðra íbúa ef ekkert er að gert. Það gengur ekki upp til lengri tíma að það fari vel á annað hundrað milljónir í þennan málaflokk.“ Bitni á þeim efnaminnstu Hermann tók undir að afleitt væri að ríkið væri hætt endurgreiðslum. Hann sagði þó mikilvægt að sjá tækifærin í verkefninu og benti á að í hópi flóttafólks væri vinnufært fólk. „Þarna er fullt af fólki sem býr yfir miklum hæfileikum og við viljum virkja það,“ sagði hann. Rjúfa þyrfti félagslega einangrun fólksins og nýta svæðið á Bifröst betur. Sagðist hann jafnvel sjá fyrir sér að þar væri hægt að koma upp heilsurekstri. Hermann sagði Borgarbyggðarlistann skera sig úr með áherslu á lýðheilsu sem hann vill að verði umvefjandi á öllum sviðum. Hann sagði mikilvægt að ákvarðanir sveitarfélagsins, hvort sem þær varða skipulag, skóla eða menningu, væru teknar með heilsu og vellíðan íbúa í huga. Leikskólamálin voru Þórði efst í huga þegar rætt var um grunnþjónustuna. Breytingar sem taka gildi í haust og snúa að því að bjóða sex tíma gjaldfrjálsa vistun, en hærra gjald fyrir tíma umfram það, sagði hann líklegar til að bitna á þeim efnaminnstu og íbúum í dreifbýli. Vill hann skoða aðrar útfærslur þar. Þá sagði hann sorphirðu í dreifbýli orðið ábótavant og að mikilvægt væri að gera úrbætur í þeim efnum. Sigurður benti á að sveitarfélagið væri víðfeðmt og búsetan fjölbreytt, en leggja þyrfti áherslu á að styrkja byggðina um allt sveitarfélagið. Sveitarstjórnin hefði mögulega verið of upptekin af því að skipuleggja og byggja upp en gleymt að horfa til þess að styrkja grunnþjónustuna. Þá sagðist hann hafa áhyggjur af tekjum sveitarfélagsins, en tók undir með Davíð að hann væri vongóður um að leiðrétting fengist. Sundabraut „leikbreytir“ Frambjóðendur voru sammála um að mikil tækifæri lægju í ferðaþjónustu í Borgarbyggð. Sigurður benti á að það hentaði iðnfyrirtækjum að vera í Borgarnesi vegna góðrar tengingar við þjóðvegakerfið og nálægðar við markaðinn. Þá sagði hann vannýtta möguleika í landbúnaði á svæðinu. Þórður tók undir það. „Það liggja allir vegir til Borgarness,“ sagði hann. Davíð sagði skort á íbúðarhúsnæði hafa hamlað vexti fyrirtækja á svæðinu. Því hefði verið ráðist í átak og nú væru á annað hundruð íbúðir að komast á byggingarstig. Þá væri verið að reyna að laða fyrirtæki að svæðinu með því að bjóða stórar og fjölbreyttar atvinnulóðir á hagstæðum kjörum. Einnig muni Sundabraut hafa jákvæð áhrif. „Í framtíðarsýn fyrir svæðið sjáum við að Sundabraut verður algjör leikbreytir í tengingu okkar við höfuðborgarsvæðið. Þetta er að verða eitt atvinnusvæði.“ Hann sagðist telja að innviðir gætu staðið undir vexti sveitarfélagsins, engir biðlistar væru eftir leikskólaplássum og í raun vanti fleiri börn. „Við höfum í gríni velt því fyrir okkur að auglýsa lóðir þar sem óskað er eftir börnum í leikskóla.“ Hermann B. Valsson, Davíð Sigurðsson, Þórður Brynjarsson og Sigurður Guðmundsson mættust í myndveri. Morgunblaðið/María Matthíasdóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa Unnu í raun í Víkingalottóinu Myndir: Húsfyllir á borgarafundi á Eskifirði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fine weather expected today on Labour Day Stofnandi tískumerkis sakfelldur fyrir nauðgun Á blaði hjá Manchester United „Eru Garðbæingar létt kransakökuóðir?“ Listahátíð er gluggi út í heim Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er litli föstudagur“ Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Herjólfur III verður klár í næstu viku Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Herjólfur III verður klár í næstu viku Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Fine weather expected today on Labour Day Stofnandi tískumerkis sakfelldur fyrir nauðgun Á blaði hjá Manchester United „Eru Garðbæingar létt kransakökuóðir?“ Listahátíð er gluggi út í heim Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis „Ég segi nei“ Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Hallærisplanið er ekki að virka Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Herjólfur III verður klár í næstu viku Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fan

Share this article