Geimfarinu Orion var skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída í gærkvöldi. „Við förum fyrir allt mannkynið,“ sagði hinn kanadíski geimfari Jeremy Hansen fyrir skotið. Fylgjast má með beinni útsendingu NASA frá ferðinni hér fyrir neðan. Fjórir geimfarar eru um borð í geimfarinu, Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt Jeremy Hansen. Þau ferðast nú á sporbaug um jörðu áður en haldið er af stað í átt að tunglinu. Útlit var fyrir að geimskotinu yrði frestað um stund vegna tæknilegra örðugleika en geimfarið fór á loft á ellefta tímanum. Geimfararnir munu þó ekki lenda á tunglinu heldur fljúga í kringum það. Þannig ferðast þeir lengra frá jörðinni en í nokkurri annarri mannaðri geimferð í sögunni, alls um 405 þúsund kílómetra. Þá mun áhöfnin einnig sjá hina myrku hlið tunglsins með berum augum. Talsmaður Nasa sagði að geimfararnir væru öruggir og spenntir fyrir ferðalaginu eftir vel heppnað geimskot. Stefnt á að lenda aftur á tunglinu 2028 Skotið í gær var annar liður í metnaðarfullri Artemis-áætlun NASA. Fyrsti hluti fór fram 2022 þegar ómannaða geimfarið Artemis I var sent á braut um tunglið. Mönnuð tunglferð er áætluð 2028 sem partur af Artemis fjögur. Markmiðið er að koma upp varanlegri bækistöð á tunglinu sem leggur grunn að frekari landvinningum í sólkerfinu. Jared Isaacman, nýr yfirmaður NASA, sagði að Artmis-áætluninni væri ætlað að taka upp þráðinn frá fyrri Apollo-geimferðum Bandaríkjamanna en hún varð til þess að fyrstu mennirnir lentu á tunglinu árið 1969.