Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stefnan tekin á tunglið á ný

Read Full Article →

Bandaríska geimferðastofnunin NASA stefnir á mannaða ferð til tunglsins á morgun. Fari allt að óskum verður þetta í fyrsta sinn í yfir fimmtíu ár sem mannað geimfar fer til tunglsins. 54 ár frá síðustu tunglferð Síðasta mannaða ferðin til tunglsins var árið 1972. Og nú, 54 árum síðar, fer annað teymi til tunglsins; Artemis annar, skipað geimförum NASA, þeim Reid Wiseman, Victor Glover og Christinu Koch, auk Jeremy Hansen frá kanadísku geimferðastofnuninni [Canadian Space Agency]. Hægt verður að fylgjast með öllu ferlinu, meðal annars á YouTube-síðu NASA . Geimfarinu Orion verður skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída. Það fer umhverfis tunglið og heldur svo heim á ný. Geimfararnir fá því ekki þann heiður að bætast í hinn fámenna hóp sem gengið hefur á tunglinu. Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, stefnir á að senda mannaða geimflaug til tunglsins á morgun, í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Fyrstu mennirnir til að stíga á tunglið Neil Armstrong var fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið, þann 20. júlí 1969. Félagi hans Buzz Aldrin fylgdi á eftir og saman reistu þeir fyrsta þjóðfánann á tunglinu, en þriðji maðurinn, Michael Collins, flaug á braut umhverfis mánann. Talið er að hálfur milljarður hafi fylgst með atburðinum, sem var sýndur í beinni útsendingu um allan heim, þó ekki á Íslandi, þar sem að á þessum tíma var Ríkissjónvarpið alltaf í sumarfríi allan júlímánuð. Hjálmar Sveinsson verkfræðingur og Páll Theódórsson eðlisfræðingur lýstu tungllendingunni í útvarpinu. Vísir birti forsíðugrein um lendinguna daginn eftir, 21. júlí. Alþýðublaðið vísaði í orð Neils Armstrong sem hann lét falla eftir að hann steig fæti á tunglið, fyrstur manna. Flest dagblöðin greindu frá tungllendingunni tveimur dögum síðar, þar sem þau komu ekki út á mánudögum á þessum árum. Morgunblaðið birti útskrift af öllu því sem fór fram á milli geimfaranna og stjórnstöðvar NASA á meðan þeir voru á tunglinu.

Share this article