Innlent | mbl | 2.4.2026 | 10:09 Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Borghildur Anna Brynjólfsdóttir er í öndunarvél í Búdapest. Ljósmynd/aðsend/Unsplash Setja bókamerki Borghildur Anna Brynjólfsdóttir liggur nú alvarlega veik í öndunarvél á spítala í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Stofnað hefur verið til söfnunar fyrir Borghildi til að hægt sé að ferja hana heim til Íslands með sjúkraflugi. Stefnt er að því að safna 6,4 milljónum en þegar hafa safnast 2,7 milljónir. Tvær systur Borghildar eru nú með Borghildi úti í Búdapest. Lungnalæknir taldi hana ekki þurfa súrefni Kristján Ársæll Jóhannesson, góður vinur þeirra systra, segir Borghildi glíma við alvarlega lungnaþembu en hún ferðaðist til Búdapest til að fara til tannlæknis. „Hún fer til lungnalæknisins síns hérna heima og spyr hvort hann geti búið þannig um hnútana að hún fái súrefni í flugvélinni. Hann segir það óþarft, enda sé hún með svo góða súrefnismettun. Heimilislæknirinn hennar skrifar svo upp á „fit to fly“ vottorð fyrir hana án þess að svo mikið sem hlusta hana skilst mér. Hún fer því út í góðri trú um að hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu,“ segir Kristján. Þegar út var komið hóf Borghildur að fá hóstaköst en slíkt hefur mikil áhrif á viðkvæm lungu hennar. „Hún jafnar sig þó fljótlega á hóstanum en þá fer Inga systir hennar að taka eftir því að hún á sífellt erfiðara með að anda. Hóstinn skánaði en það virtist vera sem lungun væru að gefast upp. Á mánudeginum í síðustu viku skrifar svo læknir þarna úti upp á pensilín fyrir hana. Hún varð þó á endanum svo slæm að hún gat ekki borið sig uppi sjálfa og þá fara þær systur aftur til læknisins sem hringir í beinu framhaldi á sjúkrabíl,“ segir Kristján. Enn máttfarinn og getur ekki andað Þegar á spítalann var komið reyndu læknarnir að aðstoða Borghildi með öndunina til að mynda með súrefnisgrímum, það skilaði hins vegar ekki tilætluðum árangri að sögn Kristján. „Það var þá brugðið á það ráð að svæfa hana og setja hana í öndunarvél. Það átti að gefa henni smá tíma til að jafna sig og safna kröftum. Þeir reyndu svo að vekja hana tveimur dögum síðar en hún er enn það máttfarin að hún ræður ekki við að draga andann sjálf og liggur því enn í dag tengd við öndunarvél.“ Eins og áður segir er það dýrt að ferja Borghildi heim með sjúkraflugi og hefur Kristján reynt að leita hjálpar hjá stjórnvöldum til að fá aðstoð. „Alls staðar þar sem ég hef fengið svör er mér sagt að þar sem hún er ekki tryggð þá ætli þau ekki að gera neitt fyrir okkur, við þurfum bara að redda okkur. Evrópska sjúkratryggingakortið stendur bara straum af sjúkrahúsdvöl erlendis en ekkert sem viðkemur sjúkraflugi. Borgaraþjónustan segir mér að það sé mjög sjaldgæft að tryggingar grípi ekki fólk sem er strandaglópa úti í heimi. Þeir segja enga lagalega heimild fyrir ríkið að grípa inn í.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ásgeir rýfur þögnina Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Kauphöllin ræddi við ráðuneytið um innherjaupplýsingar Frakkinn óstöðvandi í Bandaríkjunum Hyundai Ioniq 6 N valinn sportbíll ársins Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Tilbúinn í samstarf við alla flokka Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Á leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Spakur en urraði þegar að var komið Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein 126 milljóna kostnaður við opnun sendiráðsins Eldsneytisbirgðir í 45 daga Biðlistinn bara lengist og lengist Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Ásgeir rýfur þögnina Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Kauphöllin ræddi við ráðuneytið um innherjaupplýsingar Frakkinn óstöðvandi í Bandaríkjunum Hyundai Ioniq 6 N valinn sportbíll ársins Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona verður veðrið um páskana Fulltrúi Íslands í Flórída: Geimkapphlaup hafið Hundleiðinlegt að standa í þessu Af hverju Bab al-Mandeb? Mest lesið Í gær Í vikunni Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Spakur en urraði þegar að var komið Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein 126 milljóna kostnaður við opnun sendiráðsins Eldsneytisbirgðir í 45 daga Biðlistinn bara lengist og lengist Niðurfelling kílómetragjalds fær Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Verðhækkanir á íslenskum pylsum vekja heimsathygli Gular viðvaranir vegna hríðar og storms Þúsundir fyrrum nemenda fengið rukkun Hundleiðinlegt að standa í þessu Enn ein lægðin á leiðinni „Eins og maður sé í stúdíóíbúð“ Gleði á Landspítala eftir vandræðalegheit Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hópur ferðamanna setti allt í vasana Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun