Innlent | mbl | 3.4.2026 | 10:31 „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Borghildur Anna Brynjólfsdóttir er í öndunarvél í Búdapest. Ljósmynd/aðsend/Unsplash Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Söfnun fyrir sjúkraflugi Borghildar Önnu Brynjólfsdóttur tók kipp í gær eftir að sagt var frá því að hún væri í öndunarvél í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Borghildur er lungnaveik og vinir og aðstandendur reyna nú að safna 6,4 milljónum króna til að koma henni undir læknishendur á Íslandi. Þar bíður hennar aðgerð sem ætlað er að geti hjálpað henni að anda af sjálfsdáðum. „Það hefur verið stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman og styðja okkur sem stöndum henni næst í því að fá hana flutta heim,“ segir Kristján Ársæll Jóhannesson, fjölskylduvinur fjölskyldu Borghildar. Frétt af mbl.is Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest 76% af upphæðinni komin í hús Rakel Rut Þorsteinsdóttir, vinkona Borghildar, heldur utan um söfnunina. „Við erum komin með 4.901.565 krónur núna. Það eru um 76% af upphæðinni sem þarf,“ segir Rakel í samtali við mbl.is. Hún ítrekar þakklæti aðstandenda. „Við viljum þakka öllum fyrir stuðninginn. Þetta er ómetanlegt,“ segir Rakel. Þá vilja aðstandendur einnig koma sérstökum þökkum á framfæri við borgaraþjónustuna og leigumiðlunina Air Broker Iceland, sem útvegaði sjúkraflugvél á hagstæðum kjörum til að flytja Borghildi til landsins. Sjúkratryggingakortið nær ekki til sjúkraflugs Líkt og fram kom í frétt mbl.is í gær hefur verið leitað til stjórnvalda í von um að fá aðstoð, en án árangurs. Borghildur er ekki tryggð þar sem evrópska sjúkratryggingakortið nær einungis til sjúkrahúsdvalar erlendis en ekki kostnaðar vegna sjúkraflugs. Haft var eftir Kristjáni Ársæli að samkvæmt upplýsingum frá borgaraþjónustu væri afar sjaldgæft að fólk í slíkri stöðu njóti ekki tryggingaverndar, en jafnframt hefði verið bent á að skortur væri á lagalegri heimild fyrir ríkið til að koma að málinu. Hægt er að leggja söfnuninni lið á eftirfarandi reikningi: Kennitala: 111085-3239 Reikningsnúmer: 0123-26-113385 Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Woods hringdi í Trump eftir handtökuna „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Leyndardómur fimmta fingursins Vondar fréttir fyrir Lakers Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Biðlistinn bara lengist og lengist Mest lesið Í gær Í vikunni Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Efnahagsmálin meira áhyggjuefni en fylgistap Óveðrið gengur niður og blíðviðri tekur við Stefnan ekki í samræmi við kröfur Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Hvasst fyrir austan en hægara annars staðar Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Niðurfelling kílómetragjalds fær Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Nýjast á mbl.is » Woods hringdi í Trump eftir handtökuna „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Leyndardómur fimmta fingursins Vondar fréttir fyrir Lakers Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Mest lesið Í gær Í vikunni Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Efnahagsmálin meira áhyggjuefni en fylgistap Óveðrið gengur niður og blíðviðri tekur við Stefnan ekki í samræmi við kröfur Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Hvasst fyrir austan en hægara annars staðar Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Niðurfelling kílómetragjalds fær Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“