Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Útlit fyrir gott páskaveður eftir daginn í dag

Read Full Article →

Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Viðvaranir færast norður og austur yfir landið með deginum og standa fram á kvöld. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir páskaveðrið líta vel út eftir daginn í dag. Blint á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en búið að opna Krapi og snjókoma er á Hellisheiði og í Þrengslum og þæfingur hefur verið í morgun á milli Borgarness og Baulu. „Það er búið að opna Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en það er enn frekar hvasst og skafrenningur á báðum þessum vegum. Það stendur þó til bóta en það mun áfram snjóa þar í hægum vindi, alveg þar til síðdegis,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni. Vegirnir vestur á firði eru opnir en á sumum stöðum er snjóþekja. „Á Vatnsskarði og sérstaklega Öxnadalsheiði er óvissustig og það er að hvessa á Öxnadalsheiði. Þar gæti orðið blint í eftirmiðdaginn.“ Viðbúið að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað Möðrudalsöræfi og Mývatnsöræfi eru líka á óvissustigi, sem og Fjarðarheiði, Vatnsskarð eystra og vegurinn um Fagradal á Austurlandi. „Það er alveg allt eins von á því að þeir geti lokast og það er fyrst og fremst blindan og skafrenningurinn sem er í þessari suðaustanátt sem er á undan þessum skilum sem fara mjög hægt norðaustur yfir landið.“ Einar segir veðrið lagast á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld. Þá kólnar og viðbúið að hálka verði í nótt og fyrramálið á Suðvesturlandi. „Fyrir utan annesin á Norðurlandi og Norðausturlandi, þá lítur þetta bara mjög vel út með veður eftir daginn í dag.“ Björgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út í þrenn verkefni í gærkvöldi og í nótt. Fyrst á Fróðárheiði þar sem ökumenn tveggja bíla fengu aðstoð frá björgunarsveitinni Lífsbjörg í gærkvöldi. Björgunarsveitirnar Ósk og Heiðar aðstoðuðu þá fimm bíla sem fastir voru í Bröttubrekku í nótt. Skilja þurfti einn bílinn eftir. Þá veitti björgunarsveitin Strandasól ökumanni aðstoð í Árneshreppi en hann hafði fest bíl sinn á Veiðileysuhálsi.

Share this article