Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stöðva þarf spíral dauða og eyðileggingar í Mið-Austurlöndum

  • What: UN official warns about escalating violence in the Middle East
  • Impact: The situation is affecting civilians and international relations
Read Full Article →

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að í Mið-Austurlöndum hefðu árásir þar sem engu væri eirt færst í aukana. Ráðist væri á almenna borgara og borgaralega innviði. „Við erum á barmi stríðs sem gæti náð til Mið-Austurlanda allra og áhrifanna gætir nú þegar um allan heim,“ sagði Guterres við blaðamenn í dag. Verð á mat og eldsneyti hafi hækkað sem komi verst niður á þeim fátækustu. Verði stríðsvélin þanin áfram eiga átökin eftir að stigmagnast. „Stöðva verður spíral dauða og eyðileggingar,“ sagði Guterres, sem vísaði einnig til stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að deilumál skuli útkljá friðsamlega. Virða þurfi fullveldi og landhelgi allra aðildarríkja og virða og verja almenna borgara og almenna innviði, svo sem kjarnorkuinnviði. Þá upplýsti Guterres að hann væri í miklum samskiptum við stríðandi fylkingar og að hann ætlaði að senda Jean Arnault erindreka sinn til Mið-Austurlanda til að taka þátt í viðræðum til að finna friðsamlega lausn. Guterres sagðist vera með skýr skilaboð til Bandaríkjanna og Ísraels. Það væri tími til kominn að stöðva stríðið sem hefði haft í för með sér miklar þjáningar. Skilaboðin til Írana eru að hætta árásum á nágrannaríki.

Share this article