- What: Three Indonesian UN peacekeepers were injured in a bombing in Lebanon
- Impact: International peacekeeping efforts in Lebanon are under threat
Þrír indónesískir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna særðust í sprengingu sunnanvert í Líbanon í gær, tveir þeirra mjög alvarlega að sögn embættismanna. Þykkur reykur stígur til himins eftir loftárásir Ísraela á úthverfi Beirút.EPA / WAEL HAMZEH Þrír landar þeirra týndu lífi í svipaðri árás þremur dögum fyrr. Upplýsingamiðstöð Sameinuðu þjóðanna í Djakarta segir ekki enn vitað hvað olli sprengingunni í gær en AFP hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að kenna megi drápin á þriðjudag skothríð úr ísraelskum skriðdreka. Ísraelsher og liðsveitir Hezbollah hafa háð harða bardaga í suðurhluta Líbanons síðan í byrjun mars.