- What: A celebrity couple has made significant profits from real estate
- Impact: The couple has invested in multiple properties over the years
Ellen DeGeneres og eiginkona hennar, leikkonan Portia de Rossi, hafa á síðustu tveimur áratugum byggt upp umfangsmikla fasteignastarfsemi, sem hefur skilað þeim um 190 milljóna dala hagnaði, samkvæmt greiningu Wall Street Journal. Þetta jafngildir 23,6 milljörðum króna hagnaði miðað við gengi dagsins í dag. Á síðustu 20 árum hafa þær keypt og selt að minnsta kosti 34 fasteignir, flestar hafa þær verið á Los Angeles-svæðinu, sem og í Montecito í Kaliforníu, auk nýlegra kaupa í Bretlandi. Að meðaltali hafa þær Ellen og Portia selt eignirnar á 37% hærra verði en þær keyptu á. Þær Ellen og Portia keyptu þessa eign í Montecito í Kaliforníu á 21 milljón dollara árið 2022 og eftir endurbætur var hún seld á 36 milljónir sama ár. Viðskipti þeirra jukust sérstaklega á tímum heimsfaraldursins, þegar þær keyptu og seldu fjölda fasteigna á skömmum tíma. Árið 2020 keyptu þær að minnsta kosti fimm fasteignir sem allar hafa síðan verið seldar, og á árunum 2021 og 2022 bættu þær við að minnsta kosti átta eignum til viðbótar. Algengt hefur verið að hjónin eigi fleiri en eina fasteign í einu og nýti tækifæri til að endurbæta og selja með hagnaði. Hönnun og endurbætur lykilatriði Fasteignaviðskipti Ellenar einkennast af mikilli áherslu á hönnun og endurbætur. Hún hefur sjálf tekið virkan þátt að gera upp eignirnar og unnið með þekktum innanhússhönnuðum. Í sumum tilvikum eru húsin endurhönnuð frá grunni en í öðrum er um að ræða minni breytingar. Ellen og Portia keyptu þessa eign í Montecito á 7 milljónir dollara árið 2017 og seldu hana á 11 milljónir ári seinna. Árið 2021 keyptu þær eigna aftur á 14,3 milljónir dollara og seldur hana árið 2023 á 21 milljón dollara. „Þetta er mjög arðbært áhugamál,“ hefur Ellen sagt um fasteignaviðskiptin. Harley Neuman, sem haldið hefur utan um fasteignaviðskiptin, bendir á mismunur á kaup- og söluverði eignanna segi ekki alla söguna því þá eigi eftir að taka inn í kostnað við endurbætur. Þrátt fyrir þetta er ljóst að þær Ellen og Portia hafa hagnast mjög vel á þessu „áhugamáli“. Milljarðamæringurinn Robert Friedland, sem fjárfest hefur í námum, keypti eignina í Santa Barbara á 96 milljónir dollara. Meðal stærstu viðskipta þeirra var sala á eign nærri Santa Barbara árið 2024 fyrir 96 milljónir dala. Þetta var eign sem þær höfðu keypt á 70 milljónir árið 2022. Söluhagnaðurinn nam því ríflega 3,2 milljörðum króna. Fluttu til Englands Þær Ellen og Portia fluttu nýverið til Englands. Ellen sagði í viðtali við BBC að sú ákvörðun hafi verið tekin eftir að Donald Trump komst til valda í Bandaríkjunum. Í Englandi hafa þær haldið áfram að kaupa og selja eignir. Kitesbridge sveitasetrið í Cotswold hefur verið sett á sölu og er verðmiðinn 30 milljónir dollara. Þær keyptu meðal annars sveitasetur í Cotswolds-héraði árið 2024 á 20 milljónir dollara, sem nú, eftir umfangsmiklar endurbætur, hefur verið sett á sölu á 30 milljónir dollara. Ellen hefur lýst því yfir að hún hafi frá unga aldri haft mikinn áhuga á arkitektúr og innanhússhönnun. Og þó hún hafi tekið sér frí frá þáttastjórnun í sjónvarpi muni hún og Portia halda áfram fasteignabransanum, nú bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.