Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eik selur hlut sinn í Suður­lands­braut 20

This article does not describe a technical security vulnerability or threat; it is a business news report detailing a real estate company's property sales and portfolio management strategy. No attack vector, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are present. The content is not applicable for a technical security summary.
Read Full Article →

Eik fast­eignafélag seldi á fyrsta árs­fjórðungi hlut sinn í Suður­lands­braut 20. For­stjóri félagsins segir Eik hafa viljað annaðhvort eiga allt húsið eða selja hlutinn. Þetta kemur fram í af­komu­til­kynningu Eikar vegna fyrsta árs­fjórðungs. Eik átti helming hússins við Suður­lands­braut 20 en seldi eignina á fjórðungnum. Af­hending fer fram á þriðja árs­fjórðungi. Fast­eignin er um 1.288 fer­metrar að stærð. Hreiðar Már Her­manns­son, for­stjóri Eikar, segir í til­kynningu að félagið hafi viljað eiga húsið í heild eða selja. Sjá einnig Leigu­tekjur Eikar jukust um tæp 20% „Suður­lands­braut 20 var einnig seld — félagið átti helminginn af húsinu en vildi annaðhvort eiga það allt eða selja. Niður­staðan var að selja,“ segir Hreiðar Már. Eik seldi einnig íbúðar­húsalóð við Foss­veg 3 á Sel­fossi, áður Eyra­veg 44, á fjórðungnum. Hreiðar segir þar með ljúka vel heppnaðri þróun á eign sem áður hýsti starf­semi Húsa­smiðjunnar. Félagið hafi breytt skipu­lagi og fengið samþykkt byggingar­magn fyrir íbúðar­húsnæði á lóðinni. Sölu­hagnaður af seldum ­eignum nam 26 milljónum króna á fjórðungnum. Hreiðar segir að Eik muni áfram skerpa á eigna­safninu. „Eigna­safnið verður áfram ítrað, við höfum myndað okkur skoðun á hverri einustu eign í safninu auk þess sem við viljum vera virk á kaup­hliðinni með skýra fjár­festinga­stefnu og arð­semis­mark­mið,“ segir hann.

Share this article