Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hnekktu banni við samkomu múslima í París

  • What: Court overturns ban on Muslim community event in Paris
  • Impact: Muslim community and civil rights advocates
Read Full Article →

Dómstóll í Frakklandi sneri í dag við banni á árlega hátíð franskra múslima í norðurhluta höfuðborgarinnar Parísar. Lögregla vildi meina að hátíðin, sem er jafnan afar fjölsótt, biði heim hættunni á hryðjuverkum. Bæði var óttast að hópar tengdir írönskum stjórnvöldum myndu gera árás á samkomuna, en lögregla kvaðst líka hafa komist á snoðir um að litlir hópar ætluðu að leggja til atlögu að gestum. Aðstandendur hátíðarinnar, samtökin Múslimar í Frakklandi, kærðu hins vegar þá ákvörðun á þeim grundvelli að þar væri verið að brjóta gegn mannréttindum fólks. Dómstóll sem tók málið fyrir sagði í úrskurði sínum að lögreglu hefði ekki tekist að sýna fram á raunverulega hættu af mótmælum eða að hægri-öfgahópar myndu beina sjónum sínum að hátíðinni.

Share this article