Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sósíalistar halda stærstu borgum — spenna vex fyrir forsetakosningarnar næsta ár

Read Full Article →

Sósíalistar hafa tryggt sér áfram völd í tveimur stærstu borgum Frakklands eftir aðra umferð borgarstjóra- og sveitarstjórnarkosninga í gær. Emmanuel Gregoire tryggði Sósíalistum sigur í höfuðborginni París gegn hægrimanninum Rachida Dati, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Vinstrimenn hafa stjórnað höfuðborginni um aldarfjórðungs skeið. Vinstrimaðurinn Benoit Payan verður áfram borgarstjóri næst stærstu borgarinnar Marseille eftir þægilegan sigur á Franck Allisio, sem er lengst til hægri á pólítíska litrófinu. Stjórnmálaflokkum lengst til hægri og vinstri gekk ekki eins vel í kosningunum sem litið var á sem vísbendingu um hverjar niðurstöður forsetakosninganna á næsta ári gætu orðið. Gregoire hét því að standa gegn framgangi hægri- og öfgahægriflokka fyrir forsetakosningarnar. „París verður þungamiðja andstöðunnar gegn þessu bandalagi sem vill hafa af okkur það mikilvægasta og viðkvæmasta, lífsgleðina sjálfa,“ sagði Gregoire. Miðjumaðurinn Edouard Philippe, fyrrverandi forsætisráðherra, var endurkjörinn borgarstjóri hafnarborgarinnar Le Havre. Hann hefur boðað forsetaframboð og þykir einna líklegastur til að standa uppi í hárinu á frambjóðendum Þjóðfylkingarinnar, hvort sem það verður Marine Le Pen eða Jordan Bardella. Þjóðfylkingunni tókst ekki að heilla kjósendur í sunnanverðu Frakklandi en náði talsverðum árangri í smærri sveitarfélögum. Hægrimaðurinn Eric Ciotti hafði til að mynda sigur í Nice, sem Bardella sagði tilheyra Þjóðfylkingunni. Hann sagði sigurgöngu fylkingarinnar rétt að hefjast, enda hefði hún aldrei átt jafnmarga kjörna fulltrúa í landinu. Íbúar 35 þúsund þorpa, bæja og borgarhluta kusu um forystumenn í fyrri umferðinni um liðna helgi en efna þurfti til annarrar umferðar í um 1.500 sveitarfélögum, þar með töldum þeim stærstu. Kosningaþátttaka var um 57 af hundraði og hefur aldrei verið minni í sveitarstjórnarkosningum að undaskildum þeim síðustu árið 2020 í miðjum kórónuveirufaraldri.

Share this article