Oddvitar Miðflokksins, Vinstrisins, Pírata og Framsóknar í Reykjavík mættust í Silfrinu í kvöld. Oddvitarnir ræddu sýn sína á rekstur borgarinnar og helstu álitamálin í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram þann 16. maí. Borgarlínan var mesta hitamálið en oddvitar Vinstrisins og Pírata segja hana snúast um að gera ráð fyrir öllum í umferðinni og gefa fólki val um samgöngur. Oddviti Miðflokksins segir borgarlínuna óhagkvæma og óþarfa. Hægt sé að ná sama árangri með hagkvæmari hætti. Oddviti Framsóknar gagnrýnir flokkana í meirihluta í borgarstjórn fyrir að vilja breyta þörfum borgarbúa frekar en að hlusta á þær. Oddvitar Framsóknar og Miðflokksins segja borgarbúa vilja breytingar. Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Kristinn Jón Ólafsson og Ari Edwald ræddu borgarlínuna, þarfir borgarbúa, húsnæðismarkaðinn og fleira í Silfrinu í kvöld. Ofstæki yfirvalda gegn fólki sem kjósi bílinn Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, segir kjósendur hafa tækifæri í kosningunum til að breyta um stefnu og áherslur í borginni. Kannanir sýni að yfirgnæfandi hluti kjósenda vilji breytingar. Stærsta mál kosninganna verði borgarlínan. „Sem er gríðarlega stór og óhagkvæm framkvæmd og óþörf, að sturta svona miklum peningum í það verkefni þegar það er búið að sýna fram á að það er hægt að ná sama árangri til að bæta almenningssamgöngur með miklu hagkvæmari hætti, með hraðvagnakerfi. Ég held að kosningarnar snúist mikið um þetta mikla ofstæki borgaryfirvalda gegn því fólki sem kýs að ferðast með bíl,“ segir Ari. Gert sé ráð fyrir því að umferðatafir vegna borgarlínu aukist um tugi prósenta á næstu árum. Miðflokkurinn sé þó ekki á móti bættum almenningssamgöngum og betri strætó. „Það er meira að segja tillaga Miðflokksins að það sé frítt fyrir alla í strætó.“ Þá segir hann þéttingu borgarinnar vera komna í öfgar og að það þurfi að taka til í rekstri borgarinnar og leggja áherslu á grunnþjónustu við íbúa. Þurfum að breyta um leið í húsnæðismálum Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, segir Vinstrið svara kalli kjósenda um að vinstrið vinni saman. „Hér erum við að hlusta og við erum að sýna það í verki að við séum tilbúin til þess að mynda samstöðu um þau málefni sem þarf að leggja áherslu á.“ Húsnæðismál séu grunnurinn og sveitarfélagið þurfi að bregðast við. „Við þekkjum öll einhvern sem býr við ótryggar aðstæður,“ segir Sanna. „Það er mjög eðlilegt að borgin komi meira að húsnæðisuppbyggingu. Ef við erum með svona kerfi eins og við erum með í dag, þar sem við horfum upp á ákveðna hópa sem hafa ekki aðgengi að öruggu og traustu húsnæði sem þau geta kallað sitt heimili út af þessari markaðsvæðingu sem hefur átt sér stað þar sem fáir hafa fengið að hagnast á fjöldanum. Þá þurfum við auðvitað að breyta um leið.“ Sanna segir borgarstjórnina hafa skerpt á því í húsnæðisáætlun að 35 prósent íbúða eigi að vera óhagnaðardrifnar. „Við erum búin að setja um 800 milljónir til félagsbústaða til að fjölga félagsíbúðum. Við erum búin að ákveða að byggja á nýju svæði af því borgin er í örum vexti og þá þarf að byggja á nýju landi.“ Hún segir að gera þurfi ráð fyrir öllum í samgöngumálum, hvaða ferðamáta sem fólk velji sér. „Það hafa verið byggðir upp innviðir þar sem áherslan hefur verið á bílinn en það er alveg eðlilegt að það sé líka gert pláss fyrir okkur hin,“ segir hún. Þá segir hún að eðlilegt væri að fólk borgaði útsvar af fjármagnstekjum til að fjármagna innviði borgarinnar. „Það er eðlilegt að við séum að sækja fjármagnið til þeirra sem hafa tekjurnar en eru ekki að greiða til nærsamfélagsins eins og aðrir. Af því að við þurfum auðvitað að búa hérna saman í samfélagi og leggja inn til samfélagsins eftir því sem við getum.“ Mikilvægast að hlusta á raddir íbúa Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, telur kosningarnar snúast um framtíð unga fólksins og barnafjölskyldna. „Við þurfum að mæta þessu unga fólki betur. Við þurfum að gera borgina mannvænni, við þurfum að gera hana grænni, við þurfum að gera hana öruggari og við þurfum að gera hana skemmtilegri.“ Þá segist hann taka heilshugar undir með Sönnu. „Varðandi húsnæðismálin og fleira sem við höfum unnið ötullega saman að í þessum meirihluta.“ Hann segir hágæða nútímasamgöngulausnir sem svari ákalli íbúa nauðsynlegar. Fólk vilji fjölbreyttar lausnir. „Með borgarlínunni erum við að skapa pláss fyrir bíla, við skulum hafa það alveg á hreinu.“ Borgarlínan snúist um að skapa valfrelsi fyrir íbúa sem í dag hafi það ekki. Tíðni strætisvagna sé ekki nógu góð og vagnar festist í umferðinni. Borgarlínan tryggi tíðni og áreiðanleika. Allra mikilvægast sé að sögn Kristins að hlusta á raddir íbúa. Hann segir húsnæðismál brenna á ungu fólki, sem vilji komast inn á markaðinn, og gervigreind og hvaða áhrif hún geti haft á atvinnutækifæri. Þar séu bæði tækifæri og áskoranir. Þá segir Kristinn sveitarfélagið þurfa að skoða leikskólamál í samstarfi við ríkið. „Við þurfum lengingu á fæðingarorlofinu. Við þurfum að fara að taka þessa umræðu. Þetta eru mikilvægustu árin í lífi barnanna okkar.“ Hann segir mikilvægt að lögbinda leikskólastigið. „Það er alveg ótrúlegt að við skulum ekki vera komin á þann stað hér á landi enn þá.“ Samfylkingin þurfi frá Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, segist reynslunni ríkari eftir kjörtímabilið sem líður nú undir lok. Hann var borgarstjóri í eitt ár en sleit svo samstarfi við Samfylkingu, Viðreisn og Pírata. Hann segir fólk vilja að stefnunni sé breytt. Einar segir tvenns konar stjórnmálamenn sitja við borðið. Annars vegar þeir sem vilji mæta þörfum borgarbúa og hins vegar þeir sem vilji breyta þörfum borgarbúa. Umferðarmálin eigi að leysa í andstöðu við íbúa. „Það er verið að valta yfir, eða hjóla yfir, með því að taka bílastæði, þrengja að einkabílnum og þetta er í andstöðu, í átökum við íbúa,“ segir Einar. „Við höfum talað um eitt bílastæði fyrir íbúð í Framsókn og sú tillaga var felld. Það er verið að byggja íbúðir sem fólk vill ekki búa í.“ Þá segir hann Samfylkinguna ekki hafa staðið við sitt í leikskólamálum. „Þrátt fyrir kosningar eftir kosningar þar sem Samfylkingin hefur lofað öllu fögru að taka inn tólf mánaða börn inn á leikskóla þá tekst það ekki. Það er kyrrstaða í leikskólamálunum og nýjar hugmyndir, fjölbreyttar leiðir til þess að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar, þær eru slegnar út af borðinu,“ segir hann. Þá gagnrýnir hann lausatök í rekstri borgarinnar, til dæmis með byggingu á leikskólanum Brákarborg. „Þetta eru stefnur sem eru í andstöðu við vilja borgarbúa og lausatök og óráðsía sem verður að vinda ofan af. Valið fyrir kjósendur sé skýrt og telur Einar að koma þurfi Samfylkingunni frá. Oddvitar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í Reykjavík mættust í Silfrinu síðasta mánudag.