Innlent | mbl | 8.5.2026 | 13:01 „Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra X26 - Borgarafundur Akureyri Getur skapað á annað hundruð störf Bilið breikkar enn frekar » Fleiri tengdar fréttir Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum líta á málefni eldri borgara sem aukastærð, auk þess sem borgaryfirvöld hafa ekki sýnt Félagi eldri borgara (FEB) mikla virðingu. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Frétt af mbl.is Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Þar segir að umræða síðustu vikna í tengslum við kosningarnar í Reykjavík hafi verið mjög einsleit og að mestu snúist um þéttingu byggðar og leikskóla-, samgöngu- og menntamál. Lítið hafi farið fyrir umræðu um málefni sem eldri borgarar hafi kallað eftir. „Stjórnmálaflokkar sem bjóða sig fram í Reykjavík líta á málefni eldri borgara sem aukastærð. Það sem flokkarnir eru með á stefnuskrá sinni um málefni eldra fólks er almennt orðalag um að „vilja“ bæta stöðu þess. Það hafa fáar skýrar tillögur verið lagðar fram,” segir í ályktuninni, þar sem skorað er á flokka í Reykjavík að taka hagsmunamál félagsins til gagngerrar skoðunar. Lítil virðing frá borgaryfirvöldum „Borgaryfirvöld hafa ekki sýnt FEB mikla virðingu. Sem dæmi fækkuðu þau fulltrúum FEB í öldungaráði Reykjavíkur árið 2024 úr þremur í einn þrátt fyrir að lög kveði á um að félag eldri borgara skuli skipa þrjá fulltrúa. Ekki var hlustað á mótrök FEB. Annað dæmi er árgjald sem eldri borgarar greiða í sund. Það var sett svo hægt væri að rukka ferðamenn sem eru 67+. Þannig áttu að fást 16 milljónir árið 2024 og um 30 milljónir 2025. Því var jafnframt lofað að þessar tekjur rynnu til baka í þágu eldra fólks. Þriðja dæmið snýr að skíðaiðkun eldri borgara. Var áður gjaldfrjáls en er það ekki lengur,” segir þar einnig. Frétt af mbl.is Vetrarkort hækkaði um 36.120 kr. Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Árni Sæberg Fram kemur að velferðarsvið Reykjavíkurborgar reki 17 félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara og haldi úti ýmiss konar félagsstarfsemi, sem sé hið besta mál. Félagið kallar þó eftir meiri samvinnu og stuðningi frá borginni við að skapa eldri borgurum ánægjulegt ævikvöld. Helstu baráttumál FEB vegna kosninganna eru: Brýnt er að endurmeta afslætti á fasteignagjöldum til tekjulágra lífeyrisþega og rýmka skerðingarmörk til muna. Mikill munur er á milli nágrannasveitarfélaga Reykjavík í óhag. Kynning á þjónustu borgarinnar gagnvart eldri borgurum verði aukin, umönnun heimaþjónustu sé ávallt eins og best verður á kosið m.t.t. menntunar, reynslu og bakgrunnsúttektar. Gerðar verði reglubundnar kannanir á gæðum þjónustunnar. Aukin umræða um ofbeldi í garð eldri borgara verði tekin fastari tökum og hindrunum verði rutt úr vegi. Heilbrigðisþjónusta í dagdvöl eldra fólks á hjúkrunarheimilum verði aukin og boðið verði upp á heyrnar-, augn- og tannlæknaþjónustu. Óhagnaðardrifin leigufélög fái úthlutað lóðum til að byggja fyrir eldri borgara. Áhersla verði lögð á að mæta fjölbreyttum húsnæðisþörfum eldra fólks. Frístundastyrkur til handa eldri borgurum til að stunda heilsurækt. FEB fái þrjá fulltrúa í öldungaráði Reykjavíkur eins og var til ársins 2024. FEB óskar eftir stuðningi og öflugu samstarfi við Reykjavíkurborg. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra X26 - Borgarafundur Akureyri Getur skapað á annað hundruð störf Bilið breikkar enn frekar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ræningjarnir á bak og burt Sendi 15 ára stelpu óviðeigandi skilaboð Skólastjóri dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun „Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ Photos: Seal pup stranded on shore in Akureyri Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland 85 þúsund fengu 250 milljarða Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Ræningjarnir á bak og burt Sendi 15 ára stelpu óviðeigandi skilaboð Skólastjóri dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun „Líta á málefni eldri borgara sem aukastærð“ Photos: Seal pup stranded on shore in Akureyri Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Tengdi ristil konu við leggöngin Áhættumatið tekur á veikleikum Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland 85 þúsund fengu 250 milljarða Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka