Silja Sóley Birgisdóttir, nýr oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, segist vilja sjá öflugri borg og lifanlegri og að þjónustan höfði betur til fólksins. Hún segir að helstu stefnumál flokksins séu húsnæðismál en einnig að borgin byggi meira sjálf og komi þannig jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. „Síðan eru það skólamálin, þau hafa verið mikið í umræðunni og það þarf að bæta starfsaðstæður fyrir starfsfólkið til að tækla af alvöru þessa manneklu og starfsmannaveltu,“ segir Silja Sóley sem telur að fjölga þurfi stöðugildum. „Það eru ágætar kröfur frá stéttarfélögunum og við eigum að hlusta á þau,“ segir hún. Aðspurð hvort borgin eigi fyrir slíku segir hún að skoða þurfi það betur. „Já, það þarf náttúrulega að fara í forgangsröðun eins og önnur verkefni borgarinnar. Það er hægt að finna pening en það myndi þurfa að koma í ljós þegar nær dregur,“ segir hún. Vilja ekki útvista strætó Þegar hún er spurð út í afstöðu flokksins til Borgarlínu segir hún að Sósíalistaflokkurinn hafi ekki beinharða afstöðu til hennar. „Þetta er allt bundið við hversu vel gengur í almenningssamgöngum. Við viljum ekki útvista strætó og ég held að það sé ákveðin forsenda fyrir því að borgarlínan virki, að við séum með almenningssamgöngur sem fólk notar,“ segir hún. Aðspurð hvaða flokkum Sósíalistaflokkurinn væri helst tilbúinn að vinna með ef flokkurinn fengi kjörna fulltrúa segir hún of snemmt að segja til um það. „Flokkarnir eru að mynda sín helstu stefnumál núna. Við erum alveg opin fyrir samstarfim, segir Silja Sóley. Væringar innan flokksins Ýmislegt hefur gengið á innan flokksins og myndaðist ákveðinn klofningur á milli fylkinga innan hans. „Þetta var klofningur og við erum allavega enn þá að mælast inni. Það lítur allt út fyrir að ganga ágætlega,“ segir Silja. Þá ákvað einnig Sanna Magdalena Mörtudóttir að fara ekki fram sem oddviti í komandi kosningum. „Það kom náttúrulega á óvart að hún hefði sagt sig frá trúnaðarstörfum og sagt sig úr flokknum,“ segir SIlja en Sanna Magdalena hefur áður sagt að hún hafi ekki sagt sig úr flokknum. Vilja stofna Byggingarfélag Reykjavíkur Í stefnu flokksins er talað um lífskjarakrísu, hnyggnandi þjónustu borgarinnar og húsnæðiskreppu. Einnig vill flokkurinn stofna Byggingarfélag Reykjavíkur. Silja Sóley segir að það yrði stofnað til þess að borgin geti sjálf farið í uppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði. „Bæði til leigu og líka til þess að selja. Borgin gæti byggt upp sína eigin innviði, gæti byggt leikskóla sjálf og til dæmis komið í veg fyrir slys eins og Brákarborgarmálið,“ segir hún. Annað stefnumál Sósíalistaflokksins er að fjármagnstekjur verði skattlagðar til jafns við launatekjur og skili sér þá til sveitarfélaganna sem útsvar. Aðspurð hvort það sé á forræði kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum að hlutast til um slíkt segir Silja Sóley það eitthvað sem þingið þyrfti að koma í gegn. „En sveitarfélögin, bæði Reykjavík og önnur, geta sett ákveðinn þrýsting á þingið en þetta hefur áhrif á borgina, borgin á að hafa eitthvað að segja um þetta en þingið verður að framkvæma það,“ segir Silja Sóley.