Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Silja Sóley leiðir lista Sósíalista í borginni

Read Full Article →

Silja Sóley Birgisdóttir stuðningsfulltrúi skipar efsta sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Sigrún E. Unnsteinsdóttir athafnakona verður í öðru sæti og Hannes Pétursson verslunarmaður í því þriðja. Flokkurinn kynnti tíu efstu sæti á lista flokksins í dag. Miklar breytingar verða á framboðslistanum milli kosninga. Enginn borgar- og varaborgarfulltrúa flokksins sem náðu kjöri síðast býður fram á listanum. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, sem skipaði fimmta sætið fyrir fjórum árum, er í fjórða sæti að þessu sinni. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti flokksins á kjörtímabilinu, hefur boðað framboð með Vinstri grænum undir heitinu Vor til vinstri. Í tilkynningu Sósíalistafélags Reykjavíkur, sem býður listann fram, segir að stórátak þurfi til að leysa húsnæðiskreppuna og er boðuð stofnun Byggingafélags Reykjavíkur sem byggi beint, ódýrt, gott og óhagnaðardrifið húsnæði fyrir fólk en ekki fjárfesta. „Við búum við margra ára lífskjarakrísu þar sem allar nauðsynjar verða dýrari án þess að launin okkar haldi í við þá þróun og sífellt erfiðara er að ná endum saman. Sömuleiðis hefur þjónustu borgarinnar farið hnignandi með aukinni útvistun innviða. Sósíalistar vilja taka á þessum vanda og snúa þessari þróun við. Það ER nauðsynlegt og það ER hægt.“

Share this article