Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Þrír menn ákærðir fyrir að hafa kveikt í sjúkrabílum sjálfboðaliðasamtaka

This article describes a physical attack targeting emergency medical vehicles (ambulances) belonging to a Jewish volunteer organization in London, involving arson using flammable liquid. The incident is being investigated as a hate crime and has been claimed by the Islamist group Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, which has been linked to similar attacks in Europe. The threat underscores the need for heightened physical security measures for sensitive community assets and organizations.
Read Full Article →

Þrír ungir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa kveikt í fjórum sjúkrabílum á vegum gyðinglegu Hatzola-sjálfboðaliðasamtakanna í Golders Green-hverfinu í Lundúnum 23. mars. Þeir þykja einnig hafa sýnt kæruleysi gagnvart lífi annars fólks, að því er segir í tilkynningu Lundúnalögreglunnar. Mennirnir koma fyrir rétt í Westminster í dag, laugardaginn 4. apríl. Þeir voru handteknir á þremur mismunandi stöðum í borginni á miðvikudag. Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, lítt þekkt samtök íslamista með möguleg tengsl við Íran, hafa lýst ábyrgð á verknaðinum. Þau hafa sagst standa að baki svipaðra árása í Belgíu og Hollandi auk þess sem frönsk hryðjuverkalögregla telur þau hafa skipulagt sprengjutilræði gegn útibúi Bank of America í París, sem kæft var í fæðingu. Hert hefur verið á öryggisgæslu við samkomustaði gyðinga í Lundúnum eftir atlöguna að sjúkrabílunum í Golders Green. Tveir mannanna hafa verið nafngreindir sem Hamza Iqbal og Rehan Khan en sá þriðji er undir lögaldri og því hefur ekki verið greint frá nafni hans. Hann hefur bæði breskt og pakistanskt ríkisfang en hinir tveir eru breskir ríkisborgarar. Þrír hettuklæddir menn helltu eldfimum vökva yfir sjúkrabílana og báru eld að. Engan sakaði líkamlega. Málið er rannsakað sem hatursglæpur í garð gyðinga og hefur vakið hörð viðbrögð í Bretlandi.

Share this article