Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Samtök gyðinga vöruðu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi

This article details a failure to act on specific, credible warnings of a terrorist attack targeting a Jewish community event, resulting in a mass casualty incident. The primary vulnerability was a breakdown in threat assessment and resource allocation by law enforcement, despite explicit warnings from the community about increased anti-Semitic rhetoric and the potential for violence. The report recommends enhancing security protocols for high-profile cultural events and improving inter-agency response plans for such threats.
Read Full Article →

Samfélagshópur gyðinga varaði lögregluyfirvöld í Ástralíu við því að hryðjuverkaárás kynni að vera yfirvofandi nokkrum dögum áður en feðgarnir Sajid og Naveed Akram myrtu fimmtán manns og særðu á fjórða tug á Bondi-ströndinni á ljósahátíð í desember. Bráðabirgðaniðurstöður konunglegrar rannsóknarnefndar sýna að þeir lögðu vísvitandi til atlögu að samfélagi gyðinga. Chris Minns, fylkisstjóri Nýja Suður-Wales, segir ábyrgð liggja hjá honum. „Við hefðum sent her þangað hefðum við vitað hvað gæti gerst,“ sagði hann. Í skýrslu nefndarinnar er vitnað til viðvarana samfélagshópsins um að viðlíka árás vofði yfir í ljósi þess hversu áróður gegn gyðingum hafði aukist í Ástralíu. Lögregla hafði þá sagt að fylgst yrði með ljósahátíðinni en að ekki væri unnt að hafa lögreglulið á staðnum. Mal Lanyon, lögreglustjóri í Nýju Suður-Wales, segir fjölmennt lögreglulið hafa verið í nágrenni við hátíðina enda hefði nokkur hætta verið talin á ferðum. Skýrsluhöfundar hvetja lögreglu til að auka öryggisgæslu við hátíðahöld gyðinga, ekki síst þau sem mikla athygli veki. Vopnalöggjöf var hert í Ástralíu eftir árásina. Alex Ryvchin, leiðtogi samtakanna, segir í samtali við ABC fréttastöðina mikinn ugg hafa skapast meðal gyðinga í aðdraganda hátíðarinnar og segir viðbrögð lögreglu við því óviðunandi. Skýringa á viðbrögðunum sé krafist. Forsætisráðherrann Anthony Albanese segir ákvörðun um slíkt liggja hjá stjórnvöldum í Nýju Suður-Wales og hét því að alríkisstjórnin gerði allt sem í sínu valdi væri til að tryggja öryggi almennings í kjölfar árásarinnar. Skýrsluhöfundar bentu einnig á að bæta mætti viðbragðsáætlun hryðjuverkadeildar lögreglu. Strikað var yfir nokkurn hluta ráðlegginga nefndarinnar í birtri útgáfu skýrslunnar þar sem lögreglurannsókn stendur enn yfir og eins að sögn til að viðkvæmar upplýsingar kæmust ekki í rangar hendur.

Share this article