Fimm lögreglumenn sem gæta heimilis borgarstjóra Lundúna skildu fyrir mistök eftir tösku fulla af skotfærum og vopnum fyrir utan húsið á þriðjudagskvöld. Sadiq Khan er gætt allan sólarhringinn undanfarin ár vegna ítrekaðra líflátshótana sem hann segir að rekja megi til húðlitar hans og trúar. Talsmaður borgarstjórans segir atvikið mjög alvarlegt og að lögreglu beri að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki. Lögreglumönnunum hefur tímabundið verið vikið úr starfi meðan innri rannsókn stendur yfir. Breska götublaðið The Sun segir vegfaranda hafa fundið töskuna sem meðal annars innihélt Glock skammbyssu, öflugt rafvopn og hálfsjálfvirka vélbyssu. Vegfarandinn og sambýlismaður hennar segjast varla hafa trúað sínum eigin augum og velta fyrir sér afleiðingum þess að taskan hefði lent í röngum höndum. Þau tilkynntu fundinn og skömmu síðar sóttu lögreglumenn töskuna. Sadiq Khan hefur legið undir þungu ámæli fyrir aukna glæpatíðni í bresku höfuðborginni. Þó voru framin færri morð þar á síðasta ári en undanfarin ár. Núverandi og fyrrverandi lögreglumenn velta fyrir sér ástæðum þess að lögreglumennirnir settu skotvopnin í töskuna og skildu hana eftir. Vitaskuld geti mistök orðið en lögreglumönnum sé ætlað að koma í veg fyrir glæpi en ekki kynda undir þeim.
This article describes a physical security incident, not a software vulnerability, and therefore does not contain information on CVSS scores, affected software versions, patches, or technical workarounds. The threat is the accidental loss of a bag containing firearms, including a Glock pistol and a submachine gun, by police officers guarding the London mayor's residence, creating a risk of weapons falling into criminal hands. An internal police investigation is underway, and the officers involved have been temporarily removed from duty.