- What: Increased bicycle thefts in central Reykjavik
- Impact: Residents and visitors in the area are advised to be cautious
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við aukinni tíðni vasaþjófnaðar í miðborg Reykjavíkur. Í tilkynningu lögreglu segir að mikill fjöldi tilkynninga þess efnis hafi borist undanfarna daga, þá sérstaklega við Hallgrímskirkju, Skólavörðustíg og Laugaveg. Lögregla biður ferðamenn og aðra borgara að hafa augun opin, hafa varann á og tilkynna um grunsamlega hegðun við þessa staði. Sprautaði á lögreglu úr slökkvitæki Lögreglan sinnti einnig útkalli vegna öskra og láta sem bárust úr íbúð í Reykjavík. Þá sprautaði íbúinn úr slökkvitæki þegar lögregla reyndi að nálgast hann í gegnum sameign hússins og henti því í kjölfarið í átt að lögreglu. Maðurinn var handtekinn og verður vistaður í klefa þar til hægt verður að taka framburð af honum, en í íbúðinni fundust ummerki um áfengis- og vímuefnaneyslu. Faldi sig inni í fataskáp Þá barst einnig tilkynning um ökumann sem ók á bifreið tilkynnanda og neitaði að stöðva eftir að hafa fengið fyrirmæli frá lögreglu. Tveir voru í bifreiðinni og elti tilkynnandi ökumanninn heim til hans. Lögregla fann ökumanninn ásamt farþeganum og hafði annar þeirra falið sig í fataskáp í íbúðinni. Báðir voru undir áhrifum áfengis og neituðu því að hafa ekið bifreiðinni. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa.