Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stal ítrekað úr gámi ÍBV og nældi sér í milljón

  • What: Two men convicted of stealing recyclable drinks from an Iðnafélagi vault
  • Impact: Local community in Vestmannaeyjar affected
Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.3.2026 | 14:25 Stal ítrekað úr gámi ÍBV og nældi sér í milljón Upp komst um athæfið sem reyndist vera eitthvað allt annað en draumur í dós. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Héraðsdómur Suðurlands hefur sakfellt tvo karlmenn fyrir þjófnað og peningaþvætti. Mennirnir stálu ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi íþróttafélagsins ÍBV í Vestmannaeyjum. Fram kemur í dómnum, sem féll í gær, að annar mannanna hefði verið dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn hlaut 30 daga skilorðsbundinn dóm. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum höfðaði málið á hendur mönnunum með útgáfu ákæru í janúar. Hún er í fjórum liðum. Stal fyrir rúma mílljón Þar var maðurinn, sem hlaut þyngri dóminn, ákærður fyrir þjófnað með því að hafa ítrekað á tímabilinu frá ágúst 2023 og allt fram til 30. nóvember 2023 stolið ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV sem var staðsettur við Hamarsveg í Vestmannaeyjum. Þá var hann ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa ítrekað, og að minnsta kosti fjórtán sinnum á tímabilinu frá 8. ágúst 2023 til 16. nóvember 2023, aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 1.014.420 krónur með því að skila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar sem hann hafði stolið. Hinn maðurinn var einnig ákærður fyrir þjófnað með því að hafa á tímabilinu frá ágúst 2023 og út september 2023 stolið ótilgreindu magni af endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr sama söfnunargámi ÍBV. Hann var jafnframt ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa að minnsta kosti tvisvar sinnum á tímabilinu frá 21. september 2023 og til 18. október 2023 aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 45.320 krónur með því að skila inn endurvinnanlegum drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi. Viðurkenndu sök og bótakrafa afturkölluð ÍBV fór fram á það í málinu að mennirnir myndu greiða félaginu 1,5 milljónir kr. í skaðabætur. Mennirnir mættu fyrir dóminn 12. febrúar og lýstu því yfir að þeir óskuðu ekki eftir skipun verjanda. Þeir viðurkenndu báðir skýlaust að hafa gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru. Þá kemur fram í dómnum að mennirnir hefðu gert fullnaðarskil á einkaréttarkröfu ÍBV og því væri hún afturkölluð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stal ítrekað úr gámi ÍBV og nældi sér í milljón Landsliðsmarkvörðurinn gerir það gott Myndskeið: Ótrúlegt sigurmark Þorsteins Leós Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Stefna á algjör yfirráð í lofti innan tveggja daga Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Koma bara ef þeir fá læknishjálp Norðmaður féll í Íran Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Ómetanlegt að búa að sterkum auðlindum Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Stal ítrekað úr gámi ÍBV og nældi sér í milljón Landsliðsmarkvörðurinn gerir það gott Myndskeið: Ótrúlegt sigurmark Þorsteins Leós Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Stefna á algjör yfirráð í lofti innan tveggja daga Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Evrópa komin í ógöngur með regluverk Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article